Færsluflokkur: Bloggar

Flóuð mjólk

Í dag hefur magaverkurinn verið allsráðandi í lífinu mínu og mér líkar það ekki. Í sannleika satt vildi ég frekar fá mígreni heldur en magaverkinn því með hausverkinn get ég staðið upprétt - það er ekki hægt þegar magaverkurinn lætur kræla á sér. Ég hringdi í mömmu mína og hún hafði þetta að segja: Þóra mín, nú hættir þú að borða pulsur, Kentucky, American Style og drekka kók!!! En eins og góðri mömmu sæmir þá auðvitað kom hún með skotheld ráð til að lækna magann minn: Ég á að drekka eins mikið og ég kæri mig um af flóaðri mjólk með hunangi! Borða gróft ristað brauð, drekka lgg+ og ekki drekka kók!!! Ég drekk þessa blessuðu flóuðu mjólk og hún er alveg ágæt, ristað brauð borða ég, lgg+ á ég... og kókið verð ég að drekka - annars verður mér bæði illt í maganum og hausnum og það er eitthvað sem ég legg ekki í!!! En ég drekk samt rosalega lítið kók mamma. Annars á ég tíma hjá lækninum mínum næsta þriðjudag og er komin með langan lista til að tala við hann um. 

Við erum byrjaðar að skrifa lokaritgerðina okkar og það gengur ágætlega. Ég býst við að þeir kaflar sem eru hvað erfiðastir séu nánast komnir - en þeir eru nú ekki margir. Það eru bara kynningar á því sem við höfum verið að gera og hvernig við komum til með að vinna þetta. Akkúrat í þessum töluðu orðum er ég að vinna í ritgerðinni. 

Ég er voðalega andlaus eitthvað í dag, það er eiginlega kominn háttatími hjá mér. Ég er komin með sjónvarp, þökk sé vinkonu frænku minnar sem vinnur með mér í Blómavali. 

Skal reyna að koma með betra blogg á morgun - eftir leiksýninguna sem ég fer á.... en mig grunar samt alveg hvernig sú færsla á eftir að hljóma... en við skulum sjá Wink


The last day

Við hérna í Evrópuhúsinu misstum alveg af þessum óeirðum sem fóru fram enda voru þau flest hinum megin við Dóná. En við vorum þó vöruð við og vinsamlegast beðin að halda okkur innandyra allan fimmtudaginn sem er einhverskonar frídagur hérna og svo halda okkur hérna megin árinnar í gær og í dag. Það ætti ekki að vera mikið vandamál því við höfum ekki mikinn fritíma það sem eftir er til að fara og skoða okkur um. Við höfum reyndar seinnipartinn og ætlum að reyna að skoða þinghusið og dómkirkjuna og eitthvað. Einnig ætlum við að reyna að komast aftur á þennan stórskemmtilega markað sem við fórum á á miðvikudaginn. 

Námskeiðið er alveg að verða búið - aðeins þrír eins og hálfs tíma sessions eftir. Við erum fastar til fjögur og höfum lausan tíma til kl. 8 en þá verður kveðjupartýið haldið. Það er búið að vera ótrúlega gaman herna og það verður með miklum söknuði sem við kveðjum allar þessar frabæru stelpur sem hafa verið hérna með okkur.

Við erum með leynivinaleik hérna núna og ég get ekki sagt að ég sé sú besta í þeim leik. En ég hinsvegar á ágætis leynivin: hún gaf mér fyrstu pottaplöntuna mína - pínulítinn kaktus sem ég ætla að reyna að taka með heim og svo í gærmorgun beið mín kók á borðinu minu Smile Góð kona, en hef ekki minnstu hugmynd um hver hún er.

Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og skal koma með ítarlega ferðasögu á mánudag eða þriðjudag. Fyrir þá sem það vilja vita þa lendum við í Keflavík á miðnætti annað kvöld.

 

Sólveig og Þóra
Kveð með einni sólarmynd af mer og Sólveigu. 

 

  


Bad guidance

Í dag skein sólin inn um gluggana og kitlaði okkur með geislum sínum en hlutunum er þannig háttað að sólarelskandi Íslendingar þurfa að sitja inni í litlum sal með sólina glottandi hinum megin við gluggann. Hitinn inni er óbærilegur og loftið þungt þar sem við eyðum bróðurparti dagsins og grátum það að geta ekki setið úti og sleikt sólina. Dagurinn hefur samt verið góður að flestu leyti, maturinn hérna er ágætur þótt ég hafi ekki getað borðað mikið af kvöldmatnum. En hingað til hefur maturinn samt verið bragðgóður, bara aðeins of mikið af hrísgrjónum og grænu í matnum i kvöld fyrir minn smekk.

Húsið sem við erum í (Evrópuhúsadótið) er uppi á hæð hérna í Búdapest og eftir kvöldmat fórum við Sólveig og finnska stelpan í verslun hérna rétt hjá og það má með sanni segja að líkamsræktin fyrir árið er búin. Brekkurnar eru svo brattar og yfirleitt eru ekki tröppur til að auðvelda ganginn upp göturnar svo búast má við harðsperrum í lærin næstu daga. En þetta var ágætis gönguferð og veðrið rosalega gott. Það er víst komið vor í Ungverjalandi. 

Þegar við komum til baka í húsið okkar þá vorum við búnar að ákveða að fara á ungverskan pöbb og kynnast ungverskri þjóðlagatónlist. Við villtumst tvisvar og það tók okkur um klukkutíma að finna pöbbinn sem er í tæplega fimm mínútna fjarlægð frá húsinu okkar. Guide-inn okkar í þessari ferð var hreint ekki eins myndarlegur og guide-inn og co-guide-inn okkar Sólveigar í Debrecen og heldur ekki eins góður. Reyndar var ekki neinn guide þannig, bara ein sem var með kort og var skipuð guide af þeim sökum. En hún stóð sig alls ekki eins vel og Ingvar og Bjartur. Við sólveig söknuðum þeirra og leiðsagnarinnar sem var frábær.

Á ungverska pöbbnum prófuðum við allar að drekka ekta ungverskan kokteil - þann eina sem í boði var. Í kokeilnum voru fjórar tegundir af áfengi og ekkert annað. Við Sólveig erum ekki sannir víkingar og tókum hvor um sig þrjá sopa. Skotarnir tveir drógu okkur að landi.  Ég var partý-pooperinn og fór fyrst. Reyndar fylgdu mér þrjár aðrar því þær voru hræddar við að senda mig eina af stað. Þeim fannst reyndar ekkert leiðinlegt að fara því þeim fannst ekkert gaman. Ég reyndar skemmtti mér ágætlega þannig, var bara orðin sybbin og úldin í augunum. Þau eru ennþa frekar rauð en það kemur enginn gröftur einsog fyrst. Og það er ekkert rosalega vont að vera með linsurnar, verð samt fyrr þreytt en venjulega. 

En mr. P er byrjaður að tala við mig þannig að ég ætla að fara að sofa.  


Lestarferð dauðans

Nýju gleraugunSvona lít ég út með nýju gleraugun mín. Ég er ótrúlega ánægð með þau en enn að venjast þeim og ekki alveg tilbúin til að ganga með þau ennþá. Fyrir utan það að kallinn í gleraugnabúðinni stillti þau svo þröngt að þau meiða mig soldið. En nú er komið að því að ég þarf að ganga með þau því ég afrekaði að na mér í augnsýkingu í bæði augun og get því ekki með góðu móti verið með linsurnar. Það allavega svíður dauðans mikið - og ég get ekki lagt það á augun mín nema stutta stund í einu.

Ég sit inni á herberginu okkar Sólveigar í Europian center dótinu og tókst að brjótast inn á netið herna. Ég veit ekekrt hvort ég megi það - en ég ætla ekki að spyrja um leyfi. Ætli tinna sendi á mig löggumann?? Police (bara til að nota uppáhaldskallinn hennar).

Gestgjafinn okkar Sólveigar, hún Tóta, var lögð inn í gærmorgun og send í bráðaaðgerð og var á gjörgæslu þangað til í dag. Þar með breyttust öll hennar plön fyrir helgina, hún gat nánast ekkert verið með okkur - við kíktum á hana þegar hún var enn á gjörgæslunni og uppdópuð af morfíni, hélt sér varla vakandi en afrekaði samt að hafa áhyggjur af okkur. En sem betur fer á hún æðislega vini sem lóðsuðu okkur um bæinn, borðuðu með okkur og voru alveg tilbúnir til að hanga með okkur. Við fengum guide að nafni Ingvar sem var með okkur allan tímann og co guide-inn hans var Bjartur og þeir stóðu sig með afbrigðum vel í þessum hlutverkum sínum.  Þeir fóru með okkur út að borða, sýndu okkur það markverðasta í Debrecen, ég fékk að sjá ógeðslega flotta sturtu heima hjá Ingvari, við fórum í keilu þar sem ég tapaði á móti Bjarti (en sólveig og ingvar voru svo langt fyrir neðan okkur að það tekur því ekki að tala um það) í fyrri leiknum en seinni leikinn fengum við ekki að klára því salurinn var að loka en þá var ég stigahærri en Bjartur. Ég gerði það bara fyrir karlmennskustoltið hans að leyfa honum að vinna Wink Svo skruppum við á pöbb og sátum þar heillengi og fórum svo á ungverskt djammkvöld á einhverjum  skemmtistað og já... techno út í gegn og BARA ungverjar... það er víst ekki gott djamm. Ungverjar eru ekki kúl. En þar vorum við ekki lengi því mér var orðið svo illt í augunum. 

Í dag þá heimsóttum við Tótu á spítalann og þegar mest var (á meðan við vorum hjá henni) vorum við þrjú, ég, Sólveig og Ingvar og svo fimm vinir hennar úr kirkjunni. Stofan angaði af blómum sem hún hafði fengið og hún var búin að fá milljón gesti, fullt af nammi, íslenskar kökur og útlenskar heimabakaðar kökur - frá foreldrum vina sinna. Svo fengum við skoðunarferð um campus -háskólasvæðið og margar ferðir í rampinum. Tóta var búin að spá því að Ingvar kæmi okkur í lestina hálfri mínútu fyrir brottför og hún reyndist sannspá. Honum tókst næstum því að láta okkur missa af lestinni, en þaðer samt ekkert bara honum að kenna. Við vorum lengi hjá Tótu og svo þurftum við að ganga frá dótinu okkar og svona... og taskan mín var sko alls ekki auðveld viðureignar, en karlmaðurinn fékk að sjá um hana Wink

Í lestinni var ógeðslegur karl sem var orðinn svo fullur og það var bara laust við hliðina á honum með pláss fyrir töskurnar okkar og hann hreytti í okkur ljótum orðum og kleip í mig og potaði í mig (ég sat nær honum) og það var stelpa sem sat á móti okkur sem sagði að hann væri að segja ljót ungversk orð um okkur, kalla okkur útlendinga og eitthvað mikið ljótara. Þetta voru hræðilegir tveir og hálfur tími!! Við reyndum að hunsa hann eins og við gátum en það tókst ekki alltaf. 

Nú erum við komnar á staðinn þar sem ráðstefnan fer fram og ég er að spá í að fara bara bráðum að koma mér í rúmið, horfa á eitthvað af þessum myndum sem ég keypti á Heathrow eða lesa bókina mína.

Til að svara einhverju kommenti á færsluna fyrir neðan: Ungverjar eru sko ekki sætir en það eru hins vegar íslensku strákarnir sem eru hérna Wink já eða í Debrecen... 


Debrecen

Við Sólveig erum mættar til Ungverjalands. Komum reyndar í gærkvöldi, rétt rúmlega tólf að ungverskum tíma en þá vorum við líka komnar alveg á leiðarenda - til Debrecen til hennar Tótu sem tók vel á móti okkur.

Ferðasagan hingað til:
Við lögðum af stað frá Reykjavík kl. 6 í gærmorgun, keyrðum til Keflavíkur, sóttum mömmu sem keyrði okkur svo uppeftir. Við eyddum góðum tíma í fríhöfninni og ég fékk nýju gleraugun. Ég er með myndir inni á tölvunni minni sem ég skal reyna að setja inn við tækifæri (er í Tótutölvu núna).  Við hittum Ástu systur og fórum svo um borð í vélina. Við lentum á svona líka ýkt skemmtilegum ferðafélögum sem stálu sætunum okkar - en við settumst bara hinum megin við ganginn. Það er skemmst frá því að segja að þetta er skemmtilegasta flug sem ég hef upplifað um dagana því gaurinn sem sat við hliðina á Sólveigu var svo hot og skemmtilegur og spjallaði allan tímann. Ég auglýsi hér með eftir þessum  ýkt hot ferðafélaga okkar Wink Ég veit samt ekkert hvað hann heitir, en Ísland er lítið og örugglega ekki mikið mál að hafa uppi á honum! 

Eftir frábært flug til London tók við bið á Heathrow sem var ekki næstum því eins skemmtileg og flugið. Við sátum á kaffihúsi í um tvo tíma með plömmer-gaur fyrir framan okkur og dúfu á vappi (inni á flugvellinum). Eftir tveggja tíma bið gátum við tjekkað farangurinn okkar inn til Búdapest og farið inn á fríhafnarsvæðið á Heathrow. Fyrst þurftum við þó að fara í gegnum endalaus security check - mér fannst ég alltaf vera að taka tölvuna mína upp úr til að láta gegnumlýsa hana. Eftir rúma 6 tíma hangs á Heathrow komumst við loksins upp í vélina til Búdapest - sem var klukkutíma á eftir áætlun - vegna security checks við gate-ið. Mjög asnalegt. En við Sólveig, orðnar frekar þreyttar, skemmtum okkur ágætlega og smá hnerri hélt henni hlæjandi lengi Smile

Tveggja og hálfs tíma flug með illa lyktandi mann við hliðina á mér - heppin ég! Sólveig fékk sæta og skemmtilega strákinn en ég illa lyktandi gamlan gaur Shocking En við lifðum flugið af, vorum með þeim fyrstu til að fá töskurnar okkar og gátum farið fram og hitt gaurinn sem Tóta hafði sent til að sækja okkur. Þá tók við tveggja og hálfs tima bílferð þar sem við óttuðumst oft og tíðum um líf okkar. En við komumst heilar á húfi til Debrecen og erum núna að taka okkur til til að fara út og skoða pleisið - skólann og verslanirnar... já og jafnvel eitthvað meira! Smile

Ætla að fara að gera mig sæta!! Wink


Ungverjaland á morgun!

Í fyrramálið fljúgum við Sólveig til Ungverjalands með stoppi í London. Ég hlakka mjög til en nenni samt svo innilega ekki að pakka. En þetta er þó allt í rétta átt. Ég er með þvott niðri í þvottavélinni og ein vél er eftir, kynningarefnið er komið ofan í tösku sem og allar nauðsynlegar snúrur og buxur. Restin er á leið ofan í. Ég bara geri mér ekki alveg grein fyrir því hversu mikið af fötum ég þarf að hafa, ég hef enga hugmynd um hvað ég er að fara út í. Á eftir þarf ég að fara og kaupa gjaldeyri, sækja debetkortið mitt, kaupa lyfjabox því ég nenni ekki með milljón lyfjaglös út - þau taka of mikið pláss og sækja flugmiðana fyrir okkur Sólveigu upp á Holtaveg. 

Við fljúgum kl. 9 í fyrramálið og aldrei slíku vant þá ætla ég ekki að sofa heima í Keflavík. Ástæðan fyrir því er sú að við erum bara að fara tvær saman og hún kemur með mér bara suður, við vekjum mömmu, mamma skutlar okkur upp á völl og þau hafa bílinn minn þennan tíma svo hann komist einhvern tímann í skoðun Wink Þetta er allt saman útpælt.

Ég fór heim í gær og sá hvað pabbi er búinn að gera mikið á baðherberginu! Það er orðið geðveikt flott og á bara eftir að batna. Herbergið mitt gamla er undirlagt af flísum og drasli og ekkert pláss fyrir mig þar. Ætla að taka myndir afþví næst þegar ég fer þangað. Reyndar ætlaði ég líka að gera það þegar hann var að helluleggja innkeyrsluna en gleymdi því. Ég gleymi öllu! Er búin að skrifa tossalista fyrir daginn í dag svo ég muni eftir öllu. Mamma ætlar að koma hingað seinnipartinn og bíða eftir því að ég klári vinnuna og þá verður húsið mitt að vera almennilegt - svo hún komist fyrir.

Ég ætla að fara í sturtu og henda í aðra þvottavél. Oj hvað þetta er leiðinlegt blogg. Ætli ég reyni ekki að blogga eitthvað á meðan ég verð úti, veit samt ekkert um nettengingar eða neitt. Þetta kemur bara allt í ljós. 


Árshátíðin góða

Photo 69Ég fórí fyrsta skipti á ævinni minni í plokkun um daginn. Ég vildi ekki fara í litun líka því breytingin er svo mikil. Svo sama dag ætlaði ég að fara í neglur til Hildar (fyrir árshátíðina sko) en þar sem ég var svo veik í hausnum frestuðum við því. Miðvikudeginum eyddi ég sem sagt fyrir  framan tölvuna, að drepast í höfðinu, að reyna að læra. Það gekk bara akkúrat ekki neitt og ég endaði á að æla kvöldmatnum mínum og fleiru til Sick Ég talaði við mömmu mína og fékk loksins tíma hjá lækni... 3. apríl!!! Þangað til verð ég víst bara að vona að ég verði ekkert of slæm. En þá líka skal eitthvað fara að gerast, ég er alveg hætt að nenna þessu. Þetta er nefnilega ekki skemmtilegt - ég get sko alveg sagt ykkur það. Síðast þegar ég fór til læknisins míns þá vildi hann senda mig til taugasérfræðings ef þetta batnaði ekki af fyrirbyggjandi lyfjunum og satt best að segja þá hafa verkirnir ekkert lagast. Ég er á tveimur fyrirbyggjandi lyfjum en þau virðast ekki hafa neitt mikið að segja. 

Ég frestaði sem sagt naglatímanum þangað til á föstudagskvöldið eftir vinnu og núna er ég svo mikil pæja. Þessa mynd hérna fyrir ofan tók ég á laugardagsmorguninn þegar ég var nýbúin í sturtu því ég var að reyna að sýna Guðbjörgu nýju neglurnar mínar. Þetta eru mínar neglur, með bláu framan á (þar sem maður fær svona hvítt í French manicure) og svo gelstyrking yfir. Ég er ótrúlega ánægð með neglurnar og finnst þær ýkt kúl. Hlakka til næst þegar ég fer til Hildar. Takk Hildur mín Smile

Árshátíð KSS og KSF var æðisleg!! Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel!! Ji minn hvað ég skemmti mér geðveikt vel!! Það var svo mikið af hot gaurum þarna að ég bara hélt varla vatni!! Og það er ekki grín :) og gaman að segja frá því að ég þekki öll hottie-in mín og get talað við þau öll Wink Það er svo gaman að vera til! Ég get ekki  sagt það nógu oft hvað ég skemmti mér vel! Takk fyrir mig Kissing Matarborðsumræðurnar voru alveg einstaklega skemmtilegar oft og allt kvöldið var æðislegt, líka litlu-barnapartýið sem ég ætlaði ekki í, en fór samt af því að ég var beðin um að mæta. Shit það var gaman. Ok ég er hætt.. held þið náið þessu alveg :)

Svona í lokin (því ég nenni ekki að segja ykkur frá ógeðslega vinnudeginum mínum í gær) þá ætla ég að sýna ykkur hvað ég var ógeðslega sæt á árshátíðinni:

Photo 70 Photo 71

 

 

 

 

 

 

 

 

Gleymdi einu: Ungverjaland eftir 4 daga!!!!!!!!!! 


Innihaldslítið líf?

Þráinn vill meina að bloggin mín séu yfirleitt frekar innihaldslítil og ómerkileg! Og miðað við þá skoðun hans finnst honum ótrúlega merkilegt að ég skuli alltaf fá svona mörg komment. Ég blogga bara um það sem skiptir mig máli og er merkilegt í mínum heimi. Heimurinn minn er greinilega frekar innihaldslítill og ómerkilegur Angry Nei djók, mér er alveg sama, Þráinn minn Kissing

Í gær fór ég í sund með Þráni, Hlín og Heiðdísi og það var mjög gaman. Langt síðan ég hef hitt þau öll nema Þráin, hitti hann vikulega enda vinn ég með honum. Gaman líka að hafa Hlín í bænum en hún fer nú að koma alfarin að austan.  

Í marga marga daga er ég búin að ætla að blogga um eitt sem liggur mér mjög mikið á hjarta og þökk sé Ernu Björk þá man ég það: Vettlingar í bandi eru besta uppfinning í heimi en því miður er komið gat á mína og ég þurfti að taka þá úr úlpunni Crying Það er engan veginn hægt að týna vettlingum sem eru í bandi nema maður týni hreinlega úlpunni en án bandsins týni ég vettlingunum mínum endalaust! Síðan ég tók bandavettlingana mína úr úlpunni hef ég týnt tveimur pörum á þremur vikum held ég! Ég er einmitt að vinna í þvi að fjárfesta í nýjum vetttlingum með bandi. Mömmu minni finnst samt ekki kúl að vera með vettlingana í bandi.

Þetta kannski styður komment Þráins um ómerkileg og innihaldslítil blogg, ég veit það ekki Smile

Í dag eru bara 12 dagar þangað til ég og Sólveig förum til Ungverjalands og það eru bara 12 dagar þangað til ég fæ ný gleraugu Cool Ohh hvað ég hlakka til! Mín gömlu verða 7 ára í sumar og hafa alveg staðið sig vel, en það er kominn tími á ný. Stígur vinur minn fór með mér og hjálpaði mér að velja, en á endanum varð þetta mín ákvörðun, sem ég er ótrúlega stolt af. Það voru alveg þrír sem ég hefði hugsað mér að láta hjálpa mér við þessa ákvörðun en aðeins Stígur var í boði - án þess að ég hafi talað við hina.

Hollustan er alveg í hámarki hjá mér þessa dagana - já eða í dag og í gær. Fékk að sjá matarprógramm BootCamp hjá Sólveigu og eiginlega komst að þeirri niðurstöðu að ég yrði fljótt rekin úr bootcamp því ég borða ekki neitt af því sem er æskilegt. En núna er kotasæla komin á listann yfir hluti sem ég borða Grin Keypti einmitt svoleiðis í fyrsta sinn í gær og kjúklingaálegg líka. Hrökkbrauð með svoleiðis er rosa gott.

Sjónvarpið mitt er með stæla við mig, það slekkur á myndinni bara svona eins og því hentar og núna er ég bara að hlusta á Friends. Sem betur fer veit ég svona nokkurn veginn hvernig allir líta út Grin

Pálínuboð í Háteigskirkju eftir 40 mínútur og ég á enn eftir að klára kókið mitt úr dósinni. Kók í dós er best í heimi!! 


Blekkingaleikur!

Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Mér tókst að þríputtabrjóta mig næstum því á föstudaginn, ég fékk mígrenikast dauðans í vinnunni á laugardaginn og það var enginn til að leysa mig af svo ég gæti farið heim og dáið í friði - þetta var ogeðslegasti dagur sem ég hef upplifað í vinnunni. Fyrir utan mígrenið var ég í starfsmannavandamálum strax klukkan níu!! En það reddaðist með mörgum símhringingum og miklu pússluspili. Ég missti af bekkjarpartýinu útaf mígreninu og það gerðist ekkert merkilegt a þessari helgi. Sunnudagurinn var skárri hausverkjalega séð en starfsmannalega séð ekkert mikið betri. Bróðurpartinum náði ég þó að redda á laugardeginum. 

Ég upplifið vonbrigði lífs míns í gær! Ég fór til Keflavíkur og fór á rúntinn með henni Jóhönnu minni og eins og vaninn er fórum við á Villabar og keyptum sveitafranskar og súperdós nema að þau eru búin að skipta alvöru sveitafrönskunum út fyrir platsveitafranskar!! Crying Ég fór sko næstum því að gráta - í staðinn fyrir kartöflubátana sem voru sveitafranskar fékk ég bara svona 'American Style'-franskar sem ég fæ alveg nógu oft í Reykjavík!! 

Ég átti ótrúlega góðan dag í Keflavík í gær fyrir utan vonbrigðin með franskarnar. Ég ætla að kaupa mér ný gleraugu þegar ég fer til Ungverjalands og fór í gær og skoðaði í Optical í Kef og fann þar fjórar umgjarðir sem Stígur vinur minn ætlar svo að koma með mér í dag og skoða í Smáralindinni. Ég keypti kjól sem gæti gengið fyrir árshátíð KSS og KSF og er ýkt flottur. Ég hitti Jóhönnu og fósturforeldrana mína, mína eigin foreldra, fékk hreinan bíl og síðast en ekki síst: góðan mat!! Jú svo hitti ég auðvitað Ástu systur og Benóný og þaðvar ótrúlega gaman. Benóný er fyndnasta barn sem ég veit um, hann er svo skemmtilegur.

Framtíðin - eða næsti vetur - er næstum því kominn á hreint en afþví að plönin hafa ekki verið formlega staðfest af þeim sem það þurfa þá ætla ég ekki að gefa meira upp að svo stöddu!! 

Ég er búin að læra það að fólk getur blekkt (oj hvað þetta er asnalegt orð) mann alveg rosalega, með framkomu og tali. Sumt fólk er svo innilega ekki eins og maður heldur að það sé og kemur sífellt á óvart og þá er ég ekki að tala um gott óvart heldur vont óvart. Þetta var ekki góður lærdómur en kennir mér samt það að maður á aldrei að treysta neinum.

Sturtan kallar og svo skólinn!! 


Endurnýjun lífdaga

Þvottavélin hefur skilað sér í hús aftur og þökk sé vini mínum þá hefur sjónvarpið mitt risið upp frá dauðum. Ég hefði sennilega getað lagað það sjálf, bara með því að kveikja á sjónvarpinu eins og hann gerði, en í staðinn er ég búin að kvarta og kveina núna í viku yfir að hafa ekkert sjónvarp. En ég hef það mér til málsbóta að sjónvarpið datt út um daginn og það kviknaði ekkert á því meir þann daginn og tvo daga í viðbót. En fyrir einhverja töfra er sjónvarpinu mínu batnað!! Þannig að núna get ég þvegið föt og horft á sjónvarp án þess að hafa eytt neinum pening Smile

En það sem hefur ekki batnað ennþáer heimasíðudruslan mín. Ég fer að verða alveg óstjórnlega pirruð á þessu, kemst hvorki lönd né strönd með hana né nein af verkefnunum sem eiga að vera á henni. Jú, þau eru vistuð á svæðið mitt í skólanum í FrontPage en síðan ekki söguna meir. Núna er svo komið að ég er eitthvað að reyna að læra á forritið sem er í tölvunni minni, en það virðist ekki virka kúk. Svo hef ég fengið ábendingar um önnur forrit sem ég ætti að geta notað en það er of flókið fyrir mig (eða ég skil það allavega ekki ennþá). Ég er svo þreytt á þessu, finnst svo hrikalega heftandi að þurfa að vera endalaust uppi í skóla.

Annað kvöld er Ölversmaturinn sem haldinn er að hausti ár hvert. Hann gleymdist víst pínulítið í haust og þess vegna halda þau matinn núna til að þakka okkur fyrir góð störf síðasta sumar. Svo er ég svo ótrúlega góð og lofaði að mæta í vinnu á morgun, á frídeginum mínum því það eru veikindi og allt á leið til fjandans eða um það bil.

Næsta helgi er vinnuhelgi og á sama tíma er vormót ÆSKR. Þar þyrfti ég einmitt að vera með þrjár deildir en það verður víst ekki í boði. Sé ekki alveg fram á að það verði unnið fyrir mig á laugardaginn, þrátt fyrir að þeirri hugmynd hafi verið kastað fram. En það skiptir ekki máli, ég skemmti mér yfirleitt vel í vinnunni og helgin verður örugglega fín.

Annars er kominn svefntími á mig svo ég vakni nú á morgun til að vinna verkefni.

Það er víst erfiðara að ná í mig heldur en forsetann Grin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband