The last day

Við hérna í Evrópuhúsinu misstum alveg af þessum óeirðum sem fóru fram enda voru þau flest hinum megin við Dóná. En við vorum þó vöruð við og vinsamlegast beðin að halda okkur innandyra allan fimmtudaginn sem er einhverskonar frídagur hérna og svo halda okkur hérna megin árinnar í gær og í dag. Það ætti ekki að vera mikið vandamál því við höfum ekki mikinn fritíma það sem eftir er til að fara og skoða okkur um. Við höfum reyndar seinnipartinn og ætlum að reyna að skoða þinghusið og dómkirkjuna og eitthvað. Einnig ætlum við að reyna að komast aftur á þennan stórskemmtilega markað sem við fórum á á miðvikudaginn. 

Námskeiðið er alveg að verða búið - aðeins þrír eins og hálfs tíma sessions eftir. Við erum fastar til fjögur og höfum lausan tíma til kl. 8 en þá verður kveðjupartýið haldið. Það er búið að vera ótrúlega gaman herna og það verður með miklum söknuði sem við kveðjum allar þessar frabæru stelpur sem hafa verið hérna með okkur.

Við erum með leynivinaleik hérna núna og ég get ekki sagt að ég sé sú besta í þeim leik. En ég hinsvegar á ágætis leynivin: hún gaf mér fyrstu pottaplöntuna mína - pínulítinn kaktus sem ég ætla að reyna að taka með heim og svo í gærmorgun beið mín kók á borðinu minu Smile Góð kona, en hef ekki minnstu hugmynd um hver hún er.

Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og skal koma með ítarlega ferðasögu á mánudag eða þriðjudag. Fyrir þá sem það vilja vita þa lendum við í Keflavík á miðnætti annað kvöld.

 

Sólveig og Þóra
Kveð með einni sólarmynd af mer og Sólveigu. 

 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ohh væri til í smá sól og gott veður. Hér skiptist á að vera, snjóka, haglél og rigning ogg rok og logn.. alveg sýnsihorn af öllum veðrum undanfarna daga.

Bílnum þínum líður vel;) enda vel hugsað um hann.

sjáumst fljótlega

ásta (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 20:31

2 identicon

snjókomma.. rétt skal vera  rétt

ásta (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 20:31

3 Smámynd: Þjóðarblómið

Ef rétt skal vera rett þá er það snjókoma

 Reyni að koma í heimsókn á miðvikudaginn Ásta :)

Þjóðarblómið, 17.3.2007 kl. 23:28

4 identicon

HAHAHAHAHA!! þú ert fyndin

ásta (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 46426

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband