Hugleiðingar um framtíðina

Ég er í Keflavík og nýt lífsins. Ég fékk uppáhalds matinn minn áðan, læri með brúnuðum kartöflum og sósu. Aðallega samt kartöflurnar og sósan saman Brosandi Kartöflur eru æðislegar!! Hef nú svo sem ekki margt að segja, lærdómurinn gengur ágætlega - gæti vissulega gengið betur en hey maður verður að líta á björtu hliðarnar, ekki margar blaðsíður eftir. Svo er bara yfirferð og allt í góðum málum. 

Pabbi minn er á fullu að vinna í baðherberginu nýja. Ég sef inni í herberginu hans bróður míns því baðkarið er enn í rúminu mínu. En það er allt í lagi, hann kemur ekki heim fyrr en annað kvöld og þá verð ég farin til vinnu í bænum. 

Hvað gera bændur þegar þeir eru farnir að fara svo mikið úr hárum að þeir hafa áhyggjur af að verða sköllóttir áður en langt um líður? 

Ég er mikið farin að pæla í því hvað ég á að gera eftir útskrift, hvort sem það verður vorið 2007 úr KHÍ eða eftir B.A-gráðuna í íslensku eða masters-gráðu í kennslufræðum, já eða leikskólakennaranám. Hugurinn leitar út á land - það er draumur sem blundar í mér að fá kennarastöðu einhvers staðar úti á landi og vera þar í einhvern tíma. En svo veit ég eki hvort ég vilji yfirleitt verða kennari. Veit ekkert hvort ég hafi einu sinni hæfileika til að kenna börnum og unglingum um besta og merkilegasta tungumál í heimi. Hugurinn leitar til litlu yndislegu bleiubarnanna. Vinna með börnum á leikskólaaldri er það skemmtilegasta sem ég hef gert þannig að kannski ætti ég að taka þetta aukaár í Kennó til að verða leikskólakennari og fara síðan eitthvert að vinna. En hvert? Keflavík/Garður/Suðurnes eru ekki nógu mikið úti á landi, enda ekki nema hálftími í bæinn. Svo finnast mér margir staðir svo hrikalega langt í burtu en ég verð að viðurkenna að Ísafjörður heillar mig rosalega og hefur gert alveg síðan ég fór þangað til Fiffa og fjölskyldu hans um jólin. En það er orðið ansi langt í burtu frá höfuðborginni... Þetta er samt eitthvað sem ekki þarf að taka ákvörðun um fyrr en að ári.. en veldur mér engu að síður miklu hugarangri.

 


stupidity

Þá er þessi helgi liðin og ég get ekki sagt annað en að ég er mjög fegin því. Það var brjálað að gera í morgun eins og í gær, við vorum tvær á kassa til um hálf 12 og það var klikkun. Held ég hafi ekki getað staðið upp frá kassanum mínum fyrr en rúmlega 2... eftir fjögurra tíma stanslausa vinnu. Ég er líka drulluþreytt núna - er nýkomin frá Heiðdísi þar sem Serafar hittust í síðasta sinn áður en Þráinn fer út á laugardaginn - og ég hlakka bara til að fara að sofa. 

Ég fer reglulega bloggrúnta á hverjum degi og er búin að komast að því að það geta allir bloggað málefnalega nema ég! Ég get ekki skrifað um neitt annað en það sem ég geri or better yet það sem ég geri ekki! What's up with that!? En ykkur finnst gaman að lesa um hvað ég geri yfir daginn þannig að ég held því bara áfram Glottandi

Mér var tilkynnt af kúnna í dag að ég væri heimsk - svo heimsk að ég ætti bara að vinna í fiski!! Reyndar var það ekki bara bundið við mig persónulega heldur alla starfsmenn búðarinnar!! Við erum bara öll of heimsk til að fúnkera eða eitthvað... 

 


nenn'ekki

Clay Aiken

Ég er algerlega búin á því eftir daginn. Dagurinn minn byrjaði formlega kl. 8 en ég svaf ekki vel í nótt og var því mjög þreytt þegar ég 'vaknaði' í morgun. Ég fór í sturtu og svo í vinnuna. Þegar ég kom voru allir kassar nema einn í allri búðinni frosnir og ekkert hægt að gera. Ég byrjaði því á því að hanga í rúmlega klukkutíma. Fannst það nú ekki leiðinlegt... BrosandiEn svo líka varð allt brjálað!! Ég held ég hafi ekkert stoppað fyrr en ég fór í mat um tvöleytið. Ég er líka alveg búin á því...

Núna sit ég heima hjá mér, uppi í rúmi og langar ekki að gera neitt. Ég var að koma úr sturtu ef ég skyldi nú nenna á KSF-fund en  þar sem það eru bara 8 mínútur í fund þá nenni ég ekki að finna föt og klæða mig, er nú samt alveg búin að ákveða í hvað ég ætla... en nenni ekki að standa upp... nenni ekki einu sinni að fá mér að borða! Hversu lélegt er það! Ég hitti krakkana bara á morgun og borða seinna. 

Ég er að hlaða ipodinn minn og setja inn ný lög inn á hann. Þökk sé Dagnýju minni þá á ég Measure Of A Man diskinn með Clay Aiken og get farið að hlusta á hann alltaf. Ég er svo hamingjusöm yfir því. James Blunt er nýja uppáhaldið mitt, elska alveg allavega tvö lög með honum: Goodbye My Lover og Wisemen. Æðisleg lög.  Ég sofna alltaf með ipodinn minn í gangi - hlusta alltaf á Stígvélaða köttinn, Kiðlingana sjö og Eldfærin áður en ég sofna eða á meðan ég er að sofna.. kemst yfirleitt ekki lengra en inn í fyrsta lagið í fyrsta leikritinu Óákveðinn

Ætla að fara að borða hrökkbrauð eða eitthvað og halda áfram að horfa á Friends og læra svo Óákveðinn Góð leið til að eyða laugardagskvöldi!!!


Mygluskán

Þegar ég ætlaði að fá mér að borða í dag gerði ég merkilega uppgötvun: Allt sem mig langaði til að borða og og líka allt sem mig langaði ekki til að borða var myglað í ísskápnum mínum!! Eða næstum því allt. Þetta var ekkert mjög skemmtileg uppgötvun. En ég gat borðað smá - ristað brauð með sveppasmurosti.. sem var eiginlega líka skemmdur þannig að ég henti honum eftir notkun! Ég fór eftir vinnu í Nóatún uppi í Grafarholti og keypti mér smá mat. Nóatún er töluvert ódýrari en búllan sem ég vinn í. Líter af mjólk er alveg 5 krónum ódýrari í Nóatúni en minni búllu.

 Lærdómurinn minn gengur ágætlega. Ég er alveg að verða búin með 79 af stöðinni og þá er bara að horfa á myndirnar og skrifa ritgerðina. Ég verð byrjuð á ritgerðinni bara á morgun - annað kvöld - en ég þarf að fara til Keflavíkur til að horfa á myndirnar af því að ég á ekki vídjó. Mamma og pabbi, er það ekki í lagi? Brosandi Leiðarbókin sem á líka að skila á þriðjudaginn gengur mjög vel. Bjarni er mér innan handar og já.. það gengur bara ágætlega.

Ég er að vinna á morgun frá 9 - 19:30 og á sunnudaginn frá 10 - 19:30. Það verður gaman. Ég hef voðalega gaman af vinnunni minni. Vona bara að dagurinn verði fljótur að líða. Bækurnar bíða þegar ég kem heim annað kvöld... Ætla samt að reyna að mæta á KSF - það er orðið svo ótrúlega langt síðan ég hef hitt krakkana.

Jæja, snakkið mitt og súperdósin mín bíða mín og tölvan auðvitað líka Brosandi Eins gott að prófa - og ritgerðatímabilið sé ekki lengra en tvær vikur, ég yrði afvelta á nó tæm á öllu þessu áti!! Ég bið bara að heilsa ykkur í bili. Eigið góða helgi! Brosandi


Atómstöðin

1191.jpg

Loksins LOKSINS kláraði ég Atómstöðina!!! Lesturinn er búinn að taka mikið á en ekki tekur betra við því ég á enn eftir að lesa 79 af stöðinni og horfa á kvikmyndirnar sem gerðar voru eftir sögunum. Ritgerðarskil eru svo á þriðjudaginn!! Good Luck!!! 

Sagan er um Uglu sem kemur úr sveitum Norðurlands til höfuðborgarinnar. Hún er í vist hjá einum af ráðherrum borgarinnar, Búa Árland, konu hans og börnum. Hún kemur til borgarinnar til að læra á orgel og það gerir hún hjá Organistanum. Halldór blandar mörgum af helstu hitamálunum inn í söguna, eins og til dæmis Herstöðvarmálinu og flutningnum á beinum Jónasar Hallgrímssonar frá Kaupmannahöfn til Islands - þótt hann sé ekki kallaður Jónas í sögunni. Sagan er líka ástarsaga Búa og Uglu eftir að kona Búa fer vestur um haf en hún elur barn feimnu löggunnar sem verður þjófur. 

Sagan hefur verið talin sem framlag Halldórs Laxness til herstöðvarmálsins en hann var mikill andstæðingur herstöðvarinnar.

Sagan er ekki leiðinleg - ég veit ekki af hverju hefur tekið svona hrikalega langan tíma að fara í gegnum hana. Venjulega er ég mjög fljót með bækur en það er kannski af því að hingað til hefur verið svo langur tími í skil, en því miður er fresturinn alveg að verða búinn!! Þyrfti kannski að fara að drulla mér að halda áfram Óákveðinn

Annars fór ég og hitti Guðbjörgu mína í smástund í Smáralindinni áðan. Áður en ég gerði það keypti ég brauðrist (en ekki ristavél eins og ég segi víst en er vitlaust) og hraðsuðuketil - var komin með leið á að brenna mig á höndunum þegar ég hellti vatninu úr pottinum yfir í hitapokann minn! Gráta

Tölvan mín er farin að hegða sér mjög undarlega - hún er farin að drepa á sér bara þegar henni hentar! Eða kannski þegar hún hitnar rosalega mikið. Hún má samt eiginlega ekki bregðast mér núna! Ég ætla samt að slökkva á henni og leyfa greyinu að kæla sig niður svo ég geti notað hana í kvöld! 

Jæja, ætla að halda áfram að læra. 


*svooo sæt*

Ég verð eiginlega að ná að henda þessari færslu inn fyrir miðnætti - er búin að blogga á hverjum degi síðan ég flutti hingað yfir og það má ekki bregðast að það komi færsla á þessum dýrðardegi Brosandi Gengur mér ekki vel að vera bjartsýn? Glottandi 

Þessi dagur... hvað get ég sagt? Vaknaði um 10 og las/horfði á friends/var í tölvunni fram yfir hádegi og meira og minna í allan dag. En ég var líka dugleg. Ég var eitthvað að færa poka með blöðum og drasli inni í geymslu og fann þá ógeðslega kókklístursklessu á gólfinu mínu! Það var ógeðsleg lykt af klessunni! Ég var heillengi að þrífa hana upp, fórnaði meira að segja síðasta uppþvottaburstanum mínum i verkið. Það var nú ekkert mikil fórn samt, gat ekki vaskað upp Brosandi En ég skemmdi þá hamingju með því að kaupa nýjan uppþvottabursta! Það gengur ótrúlega vel að gera heimilið mitt fínt, þarf bara að setja hlutina á sinn stað eftir notkun - ekki upp á stofuborð eða eldhúsborð eða já.. einhvers staðar en þar sem þeir eiga ekki að vera Óákveðinn 

Fór í Smáralindina - en ég er alveg komin á það að maður á ekki að fara að versla þegar maður er þreyttur og svangur! Maður nennir þessu engan veginn og vill bara helst drulla sér aftur heim, undir sæng og já.. kannski borða líka. En ég keypti samt smá - ég keypti gult, stutt, ofursvalt pils og bláan kvartermabol. Ætlaði að kaupa svarta og hvíta langermaboli til að eiga undir Húsasmiðjuskyrtuna en það var ekkert svoleiðis til. En maður fer ekki tómhentur út úr Zöru - það er bara þannig. Ég hlustaði á Michael Jackson í ipodinu mínum á leiðinni og það var ýkt gaman Brosandi 

Ef ég á ekki eftir að deyja úr óbeinum reykingum bara hérna í rúminu mínu þá veit ég ekki hvað! Gaurinn sem býr fyrir neðan mig reykir ekkert smá mikið og lyktin kemur inn um gluggann minn með golunni!! Alger vibbi!!  

 Ég verð að sýna ykkur hvað ég er sæt! Núna fáið þið myndina í lit og kannski leyfi ég ykkur að sjá hvernig ég lít út svart/hvít og sæt á morgun Glottandi Bjarni gerði myndina svart/hvíta fyrir mig en hún var tekin í afmælinu hennar Jóhönnu um daginn.


svooo sæt

*vonin að vopni*

image002.jpg

Ég fékk grillmat áðan. Eitthvað grillað kjöt og bakaða kartöflu. Ég elska bakaðar kartöflur og sérstaklega með bernaise-sósu Brosandi Ef það væri hægt þá myndi ég kjósa að lifa bara á kartöflum í hinu ýmsasta formi - með bernaise-sósu Glottandi Æ ég veit, ég er of einhæf í mat... en hverjum er ekki sama... Þegar ég var lítil talaði ég alltaf um kartöflur sem babur... Það getur enginn sagt mér af hverju.

Ég fór í IKEA í dag til að reyna að hressa aðeins upp á heimilið mitt. Fann alveg það sem ég ætlaði mér að finna og aðeins meira til. Eyddi samt engu rosalegu. Núna vantar mig bara nokkur heimilistæki og þá er ég góð. Það ætti nú ekki að vera neitt mál að nálgast þau - nenni því bara aldrei. Hrikalega erfitt líf sko - en fyrst ég nenni þvi ekki þá getur mig ekki vantað þau neitt rosalega. Eða hvað? 

Ég fór á Karlakórstónleika áðan með mömmu minni. Það var æðislegt! Framan af voru lög í þyngri kantinum eftir Verdi og Mozart og fleiri svoleiðis en eftir hlé voru létt og skemmtileg lög. Stjórnandinn er svo mikill snillingur, hann er svo ótrúlega léttur og skemmtilegur. Það er annað en undanfarar hans, eins og smámælti gaurinn sem hljómaði líka og var ekkert skemmtilegur. Einn stjórnandinn sem var með kórinn i nokkur ár lét alltaf einn kórmeðliminn kynna og það voru mjög góðar kynningar en ekkert eins og stjórandinn núna.

Eg ætla að ljúka færslunni á lagatexta að lagi sem mér finnst æðislegt!! Ég veit að margir eiga eftir að dæma tónlistarsmekkinn minn eftir þessu lagi af því ég veit að fólki finnst þetta lag almennt ekki skemmtilegt! Þetta er textinn við lagið hans Kalla Bjarna Aðeins einu sinni sem allir þrír keppendurnir á fyrsta lokakvöldi Idol sungu:

Við lifum aðeins einu sinni
á þessum stað í þessu skinni.
Og því er um að gera að nýta
hvert tækifæri sem best.

Það er þytur í lofti og þróttur í mér,
í þankanum strauma ég finn.
Mér segir svo hugur að allt gangi upp
og þetta sé dagurinn minn.
Með viljann að vopni
og vonir sem drífa mig áfram.

Ég lagði upp með lítið.
En ég lofaði sjálfum mér því
að klára það verk sem hafið er.
Að njóta þess alveg að lifa nú og hér.

Það eiga allir sína drauma.
Í flestum hugarfylgsnum krauma
þrár sem þurfa að finna farveg,
og verða fljót fyrir rest.
Við lifum aðeins einu sinni,
á þessum stað í þessu skinni.
Því er um að gera að nýta
hvert tækifæri sem best.

Það er erfitt að lýsa með orðum í raun
hve innra ég tifa og brenn,
ég hef haldið og sleppt, hörfað og sótt,
hlegið og grátið í senn.
Og ávallt ég gefið hef allt
sem átti ég inni.

Við lifum aðeins einu sinni,
á þessum stað í þessu skinni.
Og því er um að gera að nýta
hvert tækifæri sem best.

Frá og með hér og nú ætla ég að leggja upp með það á hverjum morgni að vakna með það í huga að hver dagur verði góður, að allt sem ég taki mér fyrir hendur gangi upp - á endanum.


Bílvelta

Í svefntörn minn frá um 8 - 10:30 í morgun dreymdi mig mjög óþægilegan draum. Ég var á leið í vinnuna sem var einhvers staðar ekki í alfaraleið og það var malarvegur þangað. Ég var búin að koma og fara og það var ekkert máli. Á leiðinni í vinnuna (þriðja ferðin þann daginn) var ég að tala við mömmu í símann, hún var að tala um að ég þyrfti nú að skipta um vinnu því það væri svo langt að fara og það væri alveg að koma óveður. Við Fiffi (við vorum ennþá saman í draumnum) ætluðum að fara til Keflavíkur en vegna veðurs þurftum við að hætta við. Ég var nýbúin að skella á mömmu og fattaði að ég var ekki í belti þannig að ég sleppti stýrinu og teygði mig í beltið. Ég var á miklum hraða og bíllinn fór að rása á mölinni og á móti kemur annar bíll. Ég reyndi að ná stjórn á bílnum en endaði á því að ég keyrði útaf og þar var smá brekka og svo klettar. Bíllinn lenti á hliðinni og ég slasaðist ekkert nema fékk verk í hnén! Þar með lauk lífi Benjamíns Dags Sandbergs! Ég fór svo bara í vinnuna og þar var hún Jóhanna Kristín, en við vorum að vinna saman, og hún ætlaði að skutla mér heim. Ég þurfti líka að fá lánaða stóla því ekki gat ég sótt þá til mömmu á ónýtum bíl og veðrið var að verða vont. Ég hringdi í mömmu og lét hana vita af veltunni en vildi ekki að hringja í Fiffa af því að hann var að vinna. Svo vaknaði ég...

Ég fer til Keflavíkur í dag eða kvöld - við mamma ætlum að fara á Karlakórstónleikana í Kirkjulundi/Njarðvíkurkirkju. Veit ekki alveg í hvorri kirkjunni þeir eru. Ég veit ekki hvað ég ætla að stoppa lengi, kannski koma aftur heim til mín í kvöld en kannski vera lengur - og þá jafnvel fram á fimmtudag eða föstudag. 


Mjólkir...

mjolk_hellt_i_glas.jpg

Stolið úr tölvupósti sem ég fékk sendan í vinnunni ekki fyrir margt löngu... Eða hann var nú ekki persónulega til mín heldur til búðarinnar... en þar sem ég svara postinum fyrir hönd búðarinnar þá fékk ég hann líka Glottandi

 

Halló... okkur vantar ýkt mikið 1,5 lítra brikk af mjólkum Ullandi

Bæði ný og létt mjólkum... Ullandi

Mjólkir seljast nebblega voðalega vel hérna í ...

Væri alveg til í að fá svona 3 brikk af léttmjólkum og 2 brikk af Nýmjólkum.

Ef þið eigið mjólkir endilega sendið mér meil og ég sendi skutluna til mjólkanna ykkar.

Takk Brosandi

Kv... 

 

Mér fannst þetta of fyndið þegar ég las þetta Brosandi Mjólk er einmitt eitt af þeim orðum sem eru bara til í eintölu en ekki fleirtölu... Mjólkin mín um mjólkina mína og svo framvegis...  En ég átti því miður engar mjólkir til að redda þeim Óákveðinn Svona getur maður nú verið leiðinlegur...

Guðrún Þóra er snillingurinn sem stendur á bak við nýja flotta bannerinn minn!! Takk Guðrún Brosandi


Workin the tan

Maður ætti kannski að láta aðeins heyra í sér!! 

Ég vaknaði í morgun kl. 6:15 til að læra en ákvað samt að ég væri soldið klár og lagði mig aftur til 7. Þá las ég allt draslið yfir (er nú samt ekki eins mikið og það hljómar því þetta var bara samantekt á 21 blaðsíðu) og kveikti svo á Friends og lagði mig smá. Ákvað líka að ég þyrfti ekki að fara í sturtu þar sem ég ætlaði í sund... það voru örugglega mestu mistök sem ég hef gert!! Mér leið ýkt illa af því að mer finnst það sjást og finnast langar leiðir ef ég fer ekki í sturtu á morgnana. Þess vegna skil ég ekki fólk sem fer ekki í sturtu á hverjum degi! Ég bara skil ekki hvernig það er hægt! Ég fór svo í prófið og það gekk... Ég held nú alveg að ég hafi náð. Gat allavega svarað öllu - hversu gáfulegt sem það var nú!

Ég kom svo heim og lagði mig í smástund, horfði á Friends og svona á milli þess sem ég svaf talaði ég við Guðrúnu á msn. Þegar ég drullaðist svo fram úr rúminu aftur tók ég mig til og fór í sund. Þar hitti ég Sólveigu og svo síðar Siggu og Guðrúnu Brosandi Það var voðalega gaman Brosandi Við vorum þvílíkt að worka í tan-inu Svalur og erum orðnar ótrúlega brúnar og sætar... allavega ég. Gellan í g-strengnum er orðin reglulegur gestur laugarinnar. Hún er komin í nýtt bikiní - í fyrra var hún í rauðu og núna í ljósbleiku. Hún lítur soldið út eins og kona mafíósa eins og Sólveig segir - alltaf með eldrauðan varalit og þvílíkt máluð, með hárið alveg rosalega greitt, stóra og mikla gullhálsfesti og risaeyrnalokka - og í g-streng! Maður gerir ekki svoleiðis á Íslandi!!

Ég vaknaði með frunsu í morgun! Mér er ekkert smá illt!! en er að reyna að drepa hana með kremunum mínum!! Farðu ljóta frunsa!!!

Er að fara að vinna í þrjá og hálfan tíma á eftir.

En mig vantar ennþá einhvern til að koma með mér á Karlakórstónleikana annað kvöld. Bjarni, ertu geim?? Someone? Anyone?

*I can´t be a way to just kill time until you find someone better!*


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband