*pirr*

Ef ég fæ Ipodinn frá fyrirtækinu í þessari viku - fyrir föstudaginn (það á sko að fara í póst á morgun, gjafabréfið) þá ætla ég ekki að mæta meira!!! Það var hringt í mig áðan, kl. 16:15 og sagt að ég þyrfti að mæta til 20!! Ógeðslega varð ég pirruð en ákvað samt að mæta... En er búin að taka þá ákvörðun að mæta ekkert eftir þetta ef ipodinn minn drullast í hús!!! Af hverju fá allir frí til að læra nema ég? Af hverju þarf ég allaf að hafa fyrir því að skipta og vinna af mér og eitthvað þegar aðrir þurfa það ekki?? Ég er ógeðslega pirruð!!

 Ég mætti í gulum buxum í vinnuna! Það var kúl... jæja ætla að bæta upp glataðan lærdómstíma!!!

 

[viðbætur 3 tímum síðar]

Lærdómurinn gengur ekki sem skildi. Er búin að lesa allt tvisvar en er bara engan veginn i stuði fyrir þetta próf! Ég ætla að kíkja aðeins á glærurnar og fara svo að sofa! Planið er að vakna fyrr á morgun og byrja að læra... Það ætti að ganga eftir þar sem ég vakna hvort eð er á tveggja til þriggja tíma fresti... Get svo bara lagt mig eftir prófið!! Kókneyslan hefur ekkert minnkað - er búin að drekka sennilega tæpa tvo lítra í dag... En hey, ég er í prófum! 


sólbaðslærdómur

Benóný sætasti

Hversu ósanngjarnt er það að sólin byrji að skína eins og vitlaus væri þegar allir þeir sem eru í skóla eru í prófum? Mér finnst það mjög lélegt!! En ég hef engu að síður getað nýtt mér sólina smá. Er búin að njóta þess að sitja úti á svölunum mínum í bikiníi og fá bikinífar og freknur Glottandi Það hefur gengið svona líka þrusuvel!! En hausinn er að sama skapi ekki mjög góður. Ég gleymi því mjög reglulega að oft - ekki alltaf - fæ ég mígreniköst af sólinni og hitanum!! En hey, þá er bara að poppa nokkrar verkjatöflur og halda áfram að lesa! En ég ætla að lesa bara inni það sem eftir lifir dags. Langar samt alveg hrikalega í sund en það verður að bíða betri tíma. Er búin að plana að fara með Guðrúnu (og Siggu?) á morgun eða þriðjudag. Eins gott að sólin verði ennþá... En mig langar samt í nýtt bikiní... Mitt gamla er orðið frekar lúið...

Mér gengur ágætlega að drekka ekki [mikið] kók!  En ég er að reyna að takmarka mig bara við ákveðna tíma dagsins, þegar ég er með eitthvað [ekki óhollt] í maganum... Þá ætti ég að vera góð.

Vill einhvern að koma með mér á tónleika hjá Karlakór Keflavíkur í Njarðvíkurkirkju á þriðjudaginn? 

Ætla að halda áfram að tala við Bjarna á msn og lesa efnið Brosandi


My precious!

coke.jpg

Blogg sagði frúin og blogg skal hún fá! Brosandi

Sorgartíðindi! Gráta Reyndar bara fyrir mig - já og líklega Vífilfell líka. Ég þarf að öllum líkindum að hætta að drekka kók og ekki af því að mig langar það heldur af því að maginn minn segir það Gráta Draslans magi!! Ég ætla samt að reyna að laga mataræðið eitthvað til þess að ég þurfi ekki að hætta að drekka mitt ástkæra kók! My precious!! Ég veit í alvörunni ekki hvernig ég á að fara að því - eða hvenær! Það er enginn hentugur tími til að fá fráhvarfseinkenni núna!! Bara engan veginn sko!! Fyrir utan það að ég á endalausar birgðir af kóki núna... Og hvernig fer Vífilfell að þegar ég kaupi ekki kók lengur?? Það á eftir að fara illilega á hausinn!! Við sjáum hvernig fer... er engan veginn tilbúin til að gefa my precious upp á bátinn!!

Mér tókst að fara í samstæðum skóm í vinnuna í dag! Brosandi

Ég hitti Tinnuna mína áðan. Við fórum út að borða á American Style. Það var ótrúlega gaman enda komið svo hrikalega langt síðan ég hitti hana!!  Við sátum á Style-num í tæpa tvo tíma og töluðum og töluðum eins og okkur einum er lagið.

Ég er svo geðveikt þreytt að ég hef akkúrat ekkert að segja. Ég hringdi í hana Jóhönnu mína áðan því nú er hún formlega orðin 25 ára! Dagurinn hennar er í dag, 7. maí. Til hamingju með daginn Jóhanna mín! Brosandi


How stupid?

Systir mín er að fara til útlanda eftir rosalega fáa klukkutíma, eiginlega bara tæpa 7 tíma! Og hún tekur litla prinsinn minn með og ég fæ ekki að sjá hann í 16 daga!! Held í alvöru að það hafi aldrei liðið svona langur tími liðið á milli heimsókna til þeirra. Nema jú í fyrra þegar hann var alveg glænýr. Ég var föst í sumarbúðum og hitti hann þess vegna afar sjaldan... en síðan þá hef ég verið nánast vikulegur gestur heima hjá þeim Brosandi og borðað matinn þeirra Brosandi

Hversu utan við sig þarf maður að vera til að fara í sitthvorum skónum út?? Ég fór í sitthvorum skónum í vinnuna, öðrum svörtum NIKE-strigaskó og hinum bláum og hvítum FILA-skó en það sem meira er er að ég fattaði það ekki fyrr en fjórum og hálfum tíma síðar!!! Ég nota Nike-skóna alltaf á daginn nema þegar ég fer í vinnuna því það er svo vont að standa á þeim lengi og þeir eru í þrengri kantinum. Fila-skórnir eru hins vegar með betri botni og rýmri og þægilegri til stöðu í 8 tíma... ég áttaði mig ekki á því að það væri neinn munur  FYRR en ég fattaði ruglinginn!!  Þá fyrst varð mér illt í hælnum þeim megin sem nikeskórinn var...  en þangað til var fílingurinn í báðum fótunum alveg eins.

Ég ætti kannski að fara að sofa... Óákveðinn


No sleep

Benóný sætasti.

Ég er hætt að geta sofið á nóttunni. Ég vakna á um tveggja tíma fresti... þetta er alveg mest bögg í heimi. Í nótt fór ég að sofa um hálf 2, vaknaði aftur rétt um þrjú (ég bæði kíkti á klukkuna og svo pípir klukkan hans Fiffa alltaf inni í geymslu um þrjúleytið) ég kveikti á Friends og fór aftur að sofa. Svo vaknaði ég aftur um 6 leytið. Þá var mér orðið svo illt í síðunni/mjaðmabeininu eða eitthvað og þurfti að standa upp til að sjóða vatn í hitapokann minn svo ég gæti sofnað aftur. Það tókst að lokum og ég vaknaði aftur um 8... hljómar þetta ekki skemmtilega?? Það er alveg jafn leiðinlegt að lesa um þetta og að upplifa þetta Öskrandi Alltaf þegar eg vakna kveiki ég á Friends til að geta sofnað, finnst það mjög þægilegt. Svo vaknaði ég aftur rétt fyrir 11 og nennti ekki að reyna að sofna meira.. Kveikti bara á tölvunni og byrjaði að læra Brosandi hef einmitt um tvo og hálfan tíma í viðbót til að læra áður en ég fer í vinnuna. Gengur ágætlega. 

Eins og mér finnst gaman og gott að fara í sturtu finnst mér allt í kringum það alveg ótrúlega leiðinlegt. Mér finnst svo leiðinlegt að klæða mig úr til að geta farið í sturtuna en leiðinlegast finnst mér samt að þurrka mér eftir sturtuna...

Jæja, ætti kannski að halda áfram að læra, kókið býður og word-skjalið í tölvunni sömuleiðis Brosandi

Can you people not see me!!!  


blátt blátt blátt

eeyore.gif

Ég hunskaðist loksins til að skipta um á rúminu mínu og mér liður ekkert smá vel núna. Ligg í hreinu, bláu rúmi með tölvuna í fanginu og kók á borðinu Brosandi Ég elska að sofa í bláu. Er með lak sem er alveg ótrúlega flott blátt en reyndar með Bangsímon-sængurverið sem er ekki alveg nógu mikið blátt - bara svona ljósblátt undir og á köntunum... Bláa Bangsímon-sængurverið mitt var nefnilega að fara af. Og það eru einmitt einu tvö sængurverin sem ég á Óákveðinn Er að hugsa um að fjárfesta í bláu sængurverið við fyrsta tækifæri Brosandi Það er kannski líka kominn tími til að þroskast upp úr Bangsímon?? hmm.. nei ætli það... ekki alveg strax... er nú enn bara tuttuguogfjögurra ára...Ég sný sænginni alltaf öfugt - ekki á röngunni heldur með opnanlega endann upp að andlitinu - þegar ég sef með þessa sæng því þá er Eyrnaslapi rétt hjá mér... já ég veit, ég veit, fer bráðum að þroskast... Óákveðinn

 Nýi síminn minn er ótrúlega skemmtilegur nema ég myndast ekkert voðalega vel í honum. En hann er skemmtilegur að öllu öðru leyti! Ég náði mér í hringingar í hann í dag og vitiði hvað? Jólalagið mitt var til i svona fjöltóna dóti... ég varð ýkt glöð Brosandi Þá get eg haldið áfram að hafa jólalag allan ársins hring... mér og öllum öðrum til mikillar gleði... allavega mér Glottandi

Ég veit ekki af hverju ég er að blogga í þriðja skiptið í dag... kannski bara af því að ég er búin að vera of mikið með tölvuna í fanginu...  og mér er illt í maganum/síðunni eða eitthvað... en hausinn er búinn að vera kátur í marga daga Brosandi Þið fáið bangsímon mynd í tilefni sængurveranna minna Glottandi


Oh svo sexy

nokia_6101_s.jpg

Loksins fékk ég brjóstahaldarann minn aftur!! Ég fór með hann í LaSenza fyrir löngu síðan af því að hann var farinn að rakna upp eftir frekar litla notkun og gellurnar í búðinni ákváðu að taka hann og laga. Þær ætluðu svo að hringja þegar hann væri tilbúinn. Eitthvað virðast þær hafa gleymt því og ég sömuleiðis að fara og tjekka á honum. Ég fór í Kringluna í dag til að kaupa það allra nauðsynlegasta.. kók og meira kók og fleira drasl úr bónus, einnig fór ég til hennar Jóhönnu í Símann og keypti hjá henni geðveikan síma, mynd af honum hérna til hliðar Brosandi Á leiðinni út mundi ég svo eftir brjóstahaldaranum mínum og fór því í LaSenza. Brjóstahaldarinn var tilbúinn (örugglega fyrir löngu síðan) og fyrst ég var nú byrjuð að eyða þá ákvað ég að kaupa tvær hotpants - bleikar og bláar Glottandi  Svo maður geti nú verið sexy... Glottandi

 Á meðan ég var að versla fékk ég gátlistann sem ég var að vinna til prófs fullbúinn upp í hendurnar og þýðingu á ensku bókinni. Ferlega þægilegt Brosandi Svo þegar ég var rétt að komast á skrið aftur í lærdómnum komu mamma og pabbi og við fórum út að borða á Brasserie Ask. Takk fyrir mig Brosandi 

Er að hugsa um að halda áfram að læra...  


Lærdómur hvað?

olver6og7fl_342.jpg

Lærdómurinn gengur.. ekkert of vel en ég kemst þó áfram! Veðrið er að gera mér þvílíkan grikk því það er ýkt mikil sól úti en ekki nógu hlýtt. Ég sé það alveg í hyllingum að setja stól út á svalir og læra bara þar en því miður er kuldinn aðeins of mikill. Ég er samt alvarlega að hugsa um að kíkja í heitu pottana á eftir... Veit ég á að vera að læra.. en sólin er bara of freistandi!! Ég er að hugsa um að láta það eftir mér á eftir.. Brosandi

 Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa meira... er að lesa um íslenskukennslu í skólum og hvort hún samræmist þeim lögum sem gilda um grunnskólana. Ekkert mjög spennandi fyrir þá sem ekki hafa áhuga á þessu þannig að ég ætla ekkert að íþyngja ykkur með einhverju svona rausi...

Ætla bara að setja inn mynd af mér í staðinn fyrir lesefni... kannski kemur eitthvað meira frá mér í dag Glottandi


Hörkuskutla

_f6lver8_flokkur_20140.jpg

Dagurinn minn í Keflavíkinni var ótrúlega góður. Ég fór fljótlega upp úr hádegi og var komin um hálf tvö. Ég var búin að fá prinsinn minn lánaðan og eftir að hafa borðað fórum við í göngutúr bara tvö. Við kíktum í vinnuna til hennar Jóhönnu og fórum svo upp á heilsugæslu til mömmu. Þar lenti ég í smá bardaga við Benóný þar sem það þurfti að skipta á honum og það þarf sko að halda honum niðri!! Og hann að sjálfsögðu ekki sáttur og það heyrðist langar leiðir Brosandi En allt fór þetta nú vel að lokum. Við biðum eftir að amman kláraði vinnuna og vorum samferða henni heim. Hann sofnaði á leiðinni til baka. Við komum heim en ég gleymdi eiginlega að ég ætlaði að stoppa í búðum á leiðinni heim þannig að ég fór aftur út að labba með hann sofandi í grenjandi rigningu Óákveðinn

Ég rölti niður í Rafeindatækni og á leiðinni upp Hafnargötuna aftur mundi ég eftir því að keðjan á þríkrossinum mínum er búin að vera slitin síðan síðasta sumar þannig að ég stoppaði í Georg V. Hannah og keypti keðju. Loksins er ég komin með þríkrossinn minn um hálsinn en hann fékk ég í stúdentsgjöf frá Jóhönnu og fósturfjölskyldunni minni.  Svo kíkti ég líka við í Mangó. Ég náði að fjárfesta í tveimur bolum og einu pilsi sem er bleikt á litinn. Þess má geta að það er fyrsta bleika fatið sem ég kaupi. Annar bolurinn er svona túttubolur - bundinn í hálsinn og fleginn - og ég veit ekki alveg hvort ég komi til með að nota hann vegna þess að það er ekki hægt að vera í brjóstahaldara í honum og ég er eiginlega ekkert með brjóst... eða jújú.. bara ekki mjög sjáanleg... Óákveðinn Ég verð örugglega hörkuskutla í bolnum Glottandi

Á morgun tekur svo harkan við!! Vakna á góðum tíma fyrir hádegi, drekka næringardrykk (ef ég drullast til að vaska hristimælidótið mitt upp) læra fyrir próf, skipta um á rúminu (er enn ekki búin að því) og þvo þvott þar sem ég er að verða fatalaus... össsssss... ekki gengur það...Ég þarf líka að fara niður í búð og redda laugardeginum...


Sumarið mitt

untitled-7_15592.jpg

Ég ákvað að eyða síðustu færslu út þar sem ég var ýkt pirruð þegar ég skrifaði hana. Og það eru bara 13 manns búnir að skoða síðuna mína frá miðnætti þannig að það er allt í lagi Brosandi 

Þessi óútskýrði verkur sem ég er með ákvað að hverfa bara akkurat eiginlega ekki neitt í gær, held ég hafi náð þremum verkjalausum tímum á vaktinni í gær. Enda gerði ég nú mest lítið í gær og meikaði stundum meira að segja ekki að afgreiða viðskiptavinina. En þetta reddaðist nú allt saman - á svo ótrúlega frábæran kassastarfsmann sem reddaði þessu bara Brosandi

Núna eru bara þrír virkir dagar og tvær helgar eftir í þessari vinnu. Er búin að fá frí á sunnudaginn vegna próflesturs en ætla að reyna að losna við laugardagskvöldið líka. Fékk alveg áfall um daginn þegar ég heyrði að fólk hefði komið grátandi út úr prófinu í fyrra Gráta Vona að það verði ekki uppi á teningnum núna. 

Það fer alveg að styttast í sumarið mitt. Held það séu svona 34 dagar þangað til fyrsti flokkurinn kemur upp í Ölver. Ég hugsa samt að ég verði farin uppeftir einhverjum dögum áður, og njóta þess að vera fáir í kofanum, fara í pottinn og klára að ganga frá og svoleiðis. Ég verð fyrstu fjórtán dagana, 6. -  20. júní, kem í bæinn í viku 20. - 27. júní,og verð þá að vinna í Húsasmiðjunni, fer aftur upp í Ölver í viku, 27. júní - 4. júlí, og kem svo aftur í vikufrí, 4. - 11. júlí og fer svo uppeftir í þrjár vikur frá 11. júlí - 4. ágúst og fæ frí um verslunarmannahelgina og fer svo aftur uppeftir í eina viku frá 9. - 16. ágúst. Þetta verður stuð. Ég veit samt ekki alveg hvort ég nenni að vinna í fríinu mínu en ég hef ennþá smátíma til að ákveða það. Er búin að segjast ætla að koma en veit ekki hvort ég nenni því í alvörunni...

Ég er á leið til Keflavíkur svona þegar ég drullast framúr og í sturtu. Systir mín er flutt til Keflavíkur og ég er að fara þangað til að passa prinsinn minn á meðan mamma hans lætur dekra við sig svona rétt áður en hún fer til útlanda Brosandi Þau eru að fara til Spánar á laugardaginn í 16 daga! Ég verð nú að viðurkenna að ég öfunda þau alveg smá sko... Engin utanlandsferð handa mér í sumar... En ég og Bjarni erum jafnvel að spá í að fara í helgarferð eitthvert í haust.. af því að við virðumst vera eina fólkið sem fer ekki neitt í sumar Óákveðinn

Ætla að drulla mér í sturtu Glottandi

Ég lofaði að birta niðurstöðurnar úr könnuninni á hinu blogginu mínu:

Áttu hjálpartæki ástarlífsins?

Já, ég á egg!  66

Já, ég á dildo! 2%

Jebb ég á þrjú eða fleiri!!  6%

Jebb, ég á heilan dótakassa/skúffu!  4%

Nei glætan!!  21%

47 tóku þátt.. og flestar af stelpunum virðast eiga egg á meðan 21% segja glætan!! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband