31.5.2006 | 23:54
Obbobobb
LOKSINS hætt á Barónsstígnum og líka uppi í Grafarholti! Skila lyklunum að Barónsstígnum á morgun! Nú er ég bara í "fríi" fram á þriðjudag. Var samt beðin um að koma upp í Ölver á laugardagsmorguninn og vinna í breytingum á starfsmannaganginum og ég ætla að gera það. Fer uppeftir bara á hádegi líklegast. Hlakka ekkert smá til að takast á við verkefni sumarsins.
Á morgun fer ég í Keflavíkina. Bað Ástu um að fá að passa Benóný og það var minnsta málið, svo þarf ég að semja um tryggingarnar á bílnum mínum og fara til Benna tannlæknis. Er farin að kvíða soldið fyrir, veit nefnilega ekki hvort ég sé með skemmd í tönninni því ég hef aldrei fengið svoleiðis áður en mér er stundum illt í henni og þori ekki að bíða fram í september eftir árlegu skoðuninni minni. Kannski eru þetta bara jaxlarnir sem eru að hrekkja mig en þeir virðast ekki ætla að koma upp. Ef þeir koma ekki sjálfir ætlar Benni að sækja þá í september.
Prógrammið mitt næstu daga er einhvern veginn svona: Keflavík á morgun - passa, tannlæknir, matur heima, heimsókn til Jóhönnu. Föstudagur: námskeið ef ég nenni, annars bara þvo og þrífa og pakka niður. Laugardagur - yfirgefa borgina Sunnudagur og mánudagur - vinna vinna vinna. Þriðjudagur - börnin koma og starfið hefst á fullu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2006 | 22:09
'cause I'm leavin'
Aras vann Survivor!! Jeij!!
Í msn-nafninu mínu er alltaf titillinn af því bloggi sem er nýjast og síðasta færsla hét The Bachelorette - fór allt í einu að pæla í því hvort fólk tæki því nokkuð þannig að ég væri að auglýsa mig sem bachelorette af því að það eru lesa ekki allir sem ég er með á msn bloggið mitt.
Brúðkaupsveislan á laugardaginn var æðisleg. Magnea var svo ótrúlega falleg að ég get bara ekki líst því og Siggi náttúrlega ótrúlega myndarlegur líka. Þetta var ótrúlega gaman - þótt mér fyndist ég á tímabili einkaþjónn fyrir eina... án þess að nefna nein nöfn. Við fengum svo miklar þakkir og þetta var frábært. Það er svo gaman að gera eitthvað fyrir fólk sem sýnir þakklæti sitt með faðmlagi eða orðum. Það skiptir svo ótrúlega miklu máli. Var einmitt að þjóna með einni sem er að kenna í Garðinum og hún ætlar líka að fara að vinna að framtíð minni þar í bæ og svo annarri sem er móttökuritarinn hjá tannlækninum mínum. Lítill heimur - eða meira - lítill bær.
Á morgun er loksins komið að síðustu vaktinni minni á Barónsstígnum. Ég get ekki unnið lengur (ætti að eiga helgina) því ég fer upp í Ölver á helginni Þau vilja mig uppeftir í síðasta lagi á sunnudaginn, og ég veit að Írena Rut fer uppeftir á föstudaginn og ætlar að passa handa mér rúmið mitt í herberginu MÍNU
Og það er líklegast planið. Hef ekkert að gera í bænum og stefni að því að vera komin uppeftir um hádegi á sunnudeginum. Mér finnst að ég megi velja mér herbergi því ég verð lengst þarna upp frá fyrir utan Írenu Rut, hún verður allar 10 vikurnar fyrir utan sennilega viku í frí. Á miðvikudaginn er síðasti dagurinn minn í Grafarholtinu og shit hvað ég hlakka til!
Eruð þið nokkuð orðin þreytt á að lesa? Vona ekki því ég er ekki alveg búin...
Ég hef nánast ekkert borðað af skyndibita núna í marga daga - síðan ég fór með Frikka á sunnudaginn fyrir viku síðan á American Style - og mér finnst það ansi gott. Verð að reyna að halda maganum mínum góðum og hausnum líka og þess vegna hef ég minnkað skyndibitaát. Ég var ótrúlega stolt af mér þegar ég fór að spá í þessu en ég fattaði samt í dag að ég borða pulsu á nánast hverjum degi í vinnunni uppi í Grafarholti! Mér einhvern veginn tókst að gleyma öllum pulsunum sem ég borða - sem eru samt ekkert svo margar því það er takmarkað sem maður getur étið af þeim án þess að fá ógeð. Svo sit ég uppi í rúmi með snakk í annarri og kók í hinni og ét eins og svín... nei nei ekki alveg. Svo er ég líka alltaf með nammi hjá mér á kassanum og kók auðvitað líka. Svo er yfirleitt pantaður matur um helgar uppi i Grafarholti - pizza eða KFC - og auðvitað borðar maður af því... Ég er ekkert eins dugleg og ég hélt.
Ég var að hugsa um að kaupa mér mini-ísskáp til að hafa með upp í Ölver. Það er ekkert ofsalega vel séð að maður sé með heilu birgðarnar af kóki inni í ísskáp sem á að vera undir mat barnanna þannig að það er kannski best að eiga bara svona lítinn ísskáp svo ég geti bara geymt kók inni hjá mér. Gallinn er samt sá að hann tekur bara 33 cl dósir - og ég drekk helst ekki kók úr svoleiðis... en verður maður ekki bara að breyta því sem maður er vanur? Oh það er svo erfitt! En maður leggur ýmislegt á sig fyrir fjöldann. Núna eru bara 8 dagar þangað til fyrsti flokkurinn byrjar og hann verður víst fámennur - en góðmennur að sjálfsögðu. 19 stelpur skráðar fyrir nokkrum dögum síðan. Bara ljúft. Ætla að reyna að vera dugleg að fara á Mótel Venus til að leyfa ykkur að fylgjast með lífinu í sumarbúðunum.
Tvær einkunnir af þremur dottnar inn. Veit ekki alveg hversu sátt ég er með þær - eða aðra þeirra þar sem hin er bara staðist. Ég fékk ekki eins hátt fyrir nútímabókmenntir og ég hefði viljað en ég hef örugglega átt einkunnina skilið en þetta dregur meðaleinkunnina mína niður um helling... En ég bíð eftir síðustu einkunninni. Var að skoða ugluna áðan og ég á bara 7 áfanga eftir í Kennaraháskólanum (og reyndar tvo í HÍ) og eftir það verð ég útskrifuð með B.Ed-gráðu.
Hvernig stendur á því að maður getur hlustað og hlustað á vini sína og endalaust gefið þeim ráð sem meika bara helling sense - ekki bara fyrir mann sjálfan heldur þá líka - en sjálfur verið í algeru rusli og ekki fundið eina einustu leið út úr vandamálunum aðra en að flýja bara?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.5.2006 | 01:30
The Bachelorette
Mikið hlakka ég til á fimmtudaginn! Þá verð ég hætt í báðum vinnunum mínum og í smá pásu fram að næstu törn! Oh það verður ljúft. Ætla reyndar til tannlæknis, mig grunar nefnilega að ég sé komin með fyrstu holuna mína Líst nú ekkert á það... en vona að ég hafi rangt fyrir mér samt og þetta er eitthvað annað.
Ég fékk heimsókn áðan. Hann Bjarni kom til mín og við horfðum saman á The Bachelorette. Við skemmtum okkur konunglega yfir þættinum, fundum þann sem Bjarni vill líkjast: 'My dad owns a liquir-store...' Það var ýkt fyndið Man samt ekki restina af setningunni en hann endaði gjörsamlega á sneplunum! Nú þyrfti maður að láta taka þetta upp fyrir sig svo ég missi ekki af þessu í sumar. Öss.. ég er að fara að missa af helling af góðu sjónvarpsefni í sumar - Beverly Hills er að byrja eftir viku og allt að verða vitlaust. One Tree Hill er í góðum fíling og O.C líka.
Ég er að fara að vinna i brúðkaupinu hjá Sigga og Magneu á morgun. Giftingin fer fram í Keflavíkurkirkju en veislan verður í Karlakórshúsinu. Þar er ég öllum hnútum kunnug og vona að ég fái að vinna sem mest á barnum. Það er skemmtilegast í heimi. Hlakka bara til.
Vá, ég hélt ég hefði eitthvað meira ða segja... læt þetta gott heita í bili - er búin að vera vakandi síðan 7 í morgun... og þreytt er ég orðin. Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2006 | 00:05
Keflavíkurfegurð
Ég skrapp i Keflavíkina góðu áðan til að hitta Ástu og Benóný (og Halla líka) en þau komu frá Spáni þarsíðustu nótt. Það var ótrúlega gaman að sjá þau og Ásta var sú eina sem fékk einhvern almennilegan lit þarna úti. Þau komu að sjálfsögðu færandi hendi. Besta barnapían og uppáhaldsfrænkan fékk geggjaðan bol sem ég hlakka ýkt til að nota. Þarf bara að finna eitthvað gott tilefni til að vígja hann Við mæðgurnar fórum að skoða nýju íbúðina hennar Ástu. Hún er æði og verður geggjuð þegar allt dótið þeirra er komið inn í hana. Eins gott mér verði boðið í pottapartý í sumar!! Bíllinn minn fékk ókeypis þvott í Keflavíkinni.
Ég furða mig alltaf á því þegar ég keyri suður hversu mikil uppbygging á sér stað - eða kannski ekki á uppbyggingunni sem slíkri heldur hversu hratt þetta gengur allt fyrir sig! Innri-Njarðvík er komin langleiðina upp á Stapa! Það er reyndar ekki byrjað að byggja svo langt en það eru komnar götur með ljósastaurum næstum því yfir í Vogana.
Það er leiðinlegt að vera heima veikur. Ég var veik á mánudaginn - eða með hausverk en af því að ég var ekki að vinna þann dag skipti það ekki máli en ég var veik á þriðjudaginn líka og þurfti að hringja mig inn veika og þá getur maður sko ekki farið neitt út. Ef maður er veikur þá heldur maður sig heima!! Mér var kennt það í æsku Ég fékk heimsókn á þriðjudaginn sem var alveg sérdeilis skemmtileg! Alltaf gaman að geta boðið fólki inn í hreina íbúð
Ég er að horfa á Fegurðarsamkeppnina á Skjá einum og Friðrik Ómar er að syngja. Hann er æði!! Eurovisionlagið hans er svo grípandi og skemmtilegt.
Fegurðadrottning Íslands kemur úr Keflavík! Til hamingju Sif!! (ekki það að ég þekki hana)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2006 | 23:47
101
Vá 101 heimsókn á bloggið mitt í dag! Ótrúlega er ég vinsæl
Ég lærði áðan að búa til nýja flokka fyrir færslurnar mínar og bjó til einn flokk sem heitir 'vælið' fyrir það fólk sem ekki nennir að lesa um hausverkina mína og fleira svoleiðis skemmtilegt. Geri nú ekki ráð fyrir að blogga mikið í þann flokk þar sem allt sem ég geri og segi er svo dásamlegt að það getur ekki væl
Ég bjó til to-do lista í huganum og held ég hafi farið i gegnum öll atriðin á listanum mínum. Það gerist afskaplega sjaldan að ég klári allt sem ég ætla mér ef það tengist heimilinu mínu. Það sem ég er búin að gera í dag:
- vaska upp það sem hefur fengið að bíða soldið lengi
- setja í tvær þvottavélar - gul föt og handklæði.
- viðra púðana mína (Fiffa) og teppin
- þrífa baðherbergið
- leggja mig útaf hausverknum sem ákvað að fara ekki við þann gjörning minn
- versla
Á morgun þarf ég svo að moppa gólfin og búa um rúmið því ég á von á fólki í heimsókn. Ég er búin í vinnunni kl. 18 þannig að ég hef smá tíma áður en það gerist.
Shit ég á eftir að deyja úr myglu í vinnunni - klukkan er alveg að verða miðnætti og ég er enn ekki farin að sofa... þarf að vakna kl. 7 til að mæta í vinnu. En ég er búin að taka til hluta af morgunmatnum mínum og setja kók inn í ísskáp og þá er ég góð. Vona bara að hausinn minn verði skárri á morgun. Er búin að vera frekar slæm í dag - alveg sama hversu margar verkjatöflur ég bryð og hve lengi ég legg mig Þarf samt að fara að taka saman nákvæmlega hvernig verkirnir mínir eru ef ég þarf að fara til taugasérfræðingsins í haust... þá þarf ég að hafa eitthvað í höndunum um það hvernig verkirnir mínir eru og af hverju þeir koma.
Ég ætla að fara og tannbursta mig og reyna að sofna... sjóða mér vatn í hitapokann líka og svona...
Var samt að átta mig á því að ég er mjög sorgleg... án þess að ég ætli að útskýra það nánar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.5.2006 | 13:03
Hausverkur
Alveg er þetta hryllilega týpískt! Eini dagurinn sem ég fæ í frí í langan tíma og ég vakna með dúndrandi mígreni!! Alveg bögg sko! En þar sem ég er í fríi ætti það ekki að hafa nein áhrif á plönin mín fyrir daginn.
Síðasta helgin mín á Barónsstígnum er liðin! Ég á bara tvo virka daga eftir og þá er ég búin að uppfylla þriggja mánaða uppsagnarfrestinn!! Eftir sjö daga verð ég líka hætt uppi í Grafarholti! Oh það verður æðislegt! Frí í heila fimm daga og svo Ölverið mitt góða
Ég er búin að vinna með kassastarfsmanninum mínum síðan fyrir jól og hann er sá eini sem ég vinn með - nema hann sé veikur. Ég bað hann um að kvitta fyrir mig á nokkur blöð sem ég gleymdi að fylla út en þurfti að faxa áður en við færum heim og hann kvittaði 'Þórey' undir blöðin!! Búinn að vinna með mér í rúma sjö mánuði og veit ekki hvað ég heiti!! Hann veit samt alveg hvað ég heiti - hann kallar mig alltaf Þóru - en hann fór samt í algera flækju þegar ég benti honum á að ég héti Þóra en ekki Þórey!
Ég er að fara að hugsa um að gera eitthvað af viti - mun samt örugglega kíkja eitthvað við hérna í dag
Hver sagði þessa fleygu setningu?
'Oh my God! I´m standing at the cash register, holding a creditcard in my hand and I'm bored!!'
vælið | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.5.2006 | 15:10
Heiti potturinn minn
Þá er ágætum degi næstum því lokið! Ok... kannski ekki alveg lokið þar sem klukkan er ekki nema þrjú en þar sem ég er að fara í vinnuna eftir um klukkutíma þá finnst mér deginum eiginlega vera lokið!
Ég var að koma úr sundi með Friðrik Jensen. Það var fínt - ágætt að vinna aðeins í bikinifarinu og freknunum. Eyddum rúmlega klukkutíma í heita pottinum og spjölluðum. Fórum svo á American Style og borðuðum. Hann er einmitt að fara til Svíþjóðar í fyrramálið og þaðan til Túnis í tvær vikur eða eitthvað! Don´t like him!! Langar svo mikið til útlanda... En ég fæ að fara í uppáhalds heita pottinn minn í heiminum eftir 16 daga... hana Þóru mína
Ég á hann og hann má sko heita eftir mér - Hafsteinn segir það
Á eftir tekur við vinna í 8 tíma en svo fæ ég frí uppi í Grafarholti á morgun! Þá verður sko tekið til og þvegið Svo er vinna uppfrá í tvo daga og fimmtudagskvöld á Barónsstígnum, einn dagur uppfrá og svo vinna í brúðkaupi. Ég hlakka svo til að vinna í því. Það verður gaman. Annað af tveimur brúðkaupum sem ég kem til með að vinna í í sumar/haust. Hitt verður í september hjá Jóni Magnúsi og hans frú.
Ég fæ boðskort í eitt brúðkaup í sumar - er búin að fá frí frá Ölveri allan daginn og jafnvel alla helgina sem það verður - ef ég vil. Það verður gaman Fattaði samt að það er ævintýraflokkur og eitt af KFUK börnunum mínum verður þarna þannig að ég vil ekki taka of marga daga í frí. Ævintýraflokkarnir eru nefnilega eiginlega skemmtilegastir - þeir og unglingaflokkarnir.
Hef ofsalega fátt að segja - er að hugsa um að leggja mig smá stund áður en ég mæti í vinnuna Erfitt að vera þreyttur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.5.2006 | 12:57
Letilíf
Yndislegt líf! Annað útsofið mitt í langan tíma Það er svo gott að geta legið lengi uppi í rúmi og hugsað um að fara á fætur en fara bara akkúrat ekkert
Dásamlegt líf!! Eg er nú samt búin að setja í eina þvottavél og þarf að fara að standa upp og vaska upp og borða og taka til og svona. Það hefur fengið að sitja á hakanum soldið lengi núna útaf vinnu og lærdómi. Er svo að fara að vinna kl. 4 í dag. Já, ástandið í búðinni minni er orðið soldið slæmt - hinn kvöldvakstjórinn kom í gær og með uppsagnarbréf í höndinni. Gangi þeim vel.
Ég er með vöðvabólgu á óþægilegustu stöðum. Ég er með króníska vöðvabólgu í hálsinu og öxlunum sem ég finn yfirleitt ekkert mikið fyrir þannig lagað en hún verður verri eftir vinnuna uppfrá! Eftir síðustu nótt er ég líka farin að finna fyrir vöðvabólgu í bringunni. Það er frekar óþægilegt.
Systir mín kemur frá útlöndum á þriðjudaginn frekar en miðvikudaginn. Hlakka til að fá hana heim - hún ætlaði að kaupa eitthvað fallegt handa mér Fiffi er líka í útlöndum og kemur heim á laugardaginn. Hann ætlaði líka að kaupa eitthvað fallegt handa mér
Ég er bara hér og fer ekki neitt - nema í sumarbúðir. Verð að segja að ég væri alveg til í að fara til útlanda.. Bjarni - við verðum að fara í haust...
Það eru fullt af fólki að útskrifast í dag og í vikunni næstu. Bjarni útskrifast frá FS í dag - til hamingju með það. Jóhanna litla systir hennar Siggu er að útskrifast úr Flensborg og ef ég hef rétt fyrir mér er Þorkell Gunnar að fara að útskrifast í dag frá MS - Til hamingju. Tinna útskrifast svo næstu helgi.
Ætla að fara að gera eitthvað af viti...
Mig vantar einhvern góðan til að nudda á mér hálsinn og axlirnar!! Eg er að deyja... eða svona næstum því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.5.2006 | 13:11
Vinnualkinn
Ég endaði á að fara í kannskiekki-partýið í gærkvöldi. Það var voðalega gaman. Missti reyndar af nokkrum lögum á meðan ég fór í sturtu eftir vinnuna og svo þegar ég keyrði í partýið. En það er í góðu lagi - ég sá Silviu Nótt. Ég fæ alltaf svona þjóðarstolt þegar einhver fyrir hönd Íslands kemur fram einhvers staðar. Mér fannst þetta allt í lagi - hún var soldið andstutt, enda búin að vera veik þarna úti. En það var gaman að sjá þetta og brilliant viðtal við hana í fréttunum nokkru síðar.
Ég er búin að vera að vinna að mér finnst eins og brjálæðingur undanfarna daga fyrir utan lærdóminn sem þurfti að sinna líka. En það er allt að baki núna - var það reyndar fyrir nokkrum dögum. Ég er að fara að vinna á eftir - síðustu helgina mína í 10-11. Þess vegna var ég einmitt að vakna bara núna fyrir stuttu - engin vinna í Húsasmiðjunni í dag og ekkert fyrr en á þriðjudaginn En 10-11 á líka helgina þannig að ég sit ekkert auðum höndum neitt. Þyrfti líka að stússast og skila spólu upp í Breiðholt.. og kannski versla smá...
Í dag eru - ef ég hef ekki tapað mér í talningunni - 18 dagar þangað til ég fer upp í Ölver og sumrinu þar líkur eftir 88 daga - og það er talið eftir heimasíðunni hennar Dagnýjar, hún kemur heim 12. ágúst og ég 16.ágúst þannig að það hlýtur að vera rétt.
Ég hálfligg hérna uppi í rúminu mínu og borða snakk og drekk kók kl. rúmlega 1 á föstudegi og horfa á Friends. Sorglegt - ég veit - á svona góðum degi en ég nenni ekki að hreyfa mig. En það þarf samt að gerast fljótlega
Ég ákvað að hreyfa mig og núna er klukkan orðin 25 mínútur í vinnuna mína. Ég er búin að fara út og vera ótrúlega dugleg. Skilaði vidjóspólunni sem ég gleymdi í Keflavík en þurfti ekki að borga neina sekt, og svo fór ég í Elko. Ég eyði og eyði og eyði og eyði! Eins gott ég eigi peninga til þess Ég keypti svona hitateppi fyrir bakið - ég verð svo ótrúlega þreytt í bakinu á að vinna á kassa, sitja í mismunandi þægilegum stellingum og reyna á bakið með að lyfta þungum hlutum - þannig að mér fannst ég eiga það alveg skilið. Sit með það núna og hlakka ýkt til að koma heim úr vinnu og setja það á mig aftur.
Svo keypti ég líka pínu í viðbót Friends seríu 8!! Þá á ég frá 5-8 á dvd og allt þar á undan í tölvunni minni. Vantar sem sagt síðustu tvær
Fram að þessu finnst mér sjöunda serían held ég best - er allavega búin að horfa á hana oftast.
Sagði ég ykkur frá diskastellinu sem ég verðlaunaði mig með? Mér fannst ég nefnilega svo ótrúlega dugleg að vinna og svo auðvitað að læra að mér fannst ég þurfa að verðlauna mig með einhverju flottu. Ég keypti diskastell í Húsasmiðjunni, það heitir Aida held ég - ef ykkur vantar að gefa mér gjöf einhvern tímann, þá er hellingur til í þessu merki uppi í Húsasmiðju
Núna ætla ég að halda áfram að horfa smá á Friends og njóta hitans Blogga örugglega aftur í kvöld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2006 | 00:05
...
Mér var nánast hótað lögsókn í dag! Fyrir lélega þjónustu! Hvað er ég að gera þarna? Maður spyr sig!!
Ég vinn samt bara til 31. maí og svo er ég farin í frí. Ég tók þá ákvörðun eftir að hafa áttað mig á því að sumarvinnan mín er alger killer og ég þarf á fríinu mínu að halda til að hvíla mig. En mér finnst það fínt Fæ tvær vikur (ekki samliggjandi samt) og verslunarmannahelgina í frí og ætla að reyna að nýta tímann til að gera eitthvað fallegt. Væri gaman að fara eitthvað... en kannski maður láti höfuðborgina/Keflavík duga... kemur allt í ljós.
Ég veit eiginlega ekki af hverju ég er að blogga - eg hef akkúrat ekkert merkilegt að segja.
Júróvision á morgun... mér hefur verið boðið í tvö partý... eða eitt partý og annað kannskiekki-partý. Það verður bara að ráðast hvort ég nenni einu sinni að hreyfa mig eftir vinnu annað kvöld.
Jói bróðir er kominn heim Hann kom að norðan í dag og við fórum saman út að borða áðan. Hann er með álfaeyru.. samt ekki stór - bara oddhvöss... fannst það mjög fyndið...
Ég ætla að hætta þessu rausi.. bara svona aðeins að láta vita af mér... þarf held ég líka bráðum að sækja þvott í þvottavélina... ég eiginlega stal þvottatímanum af gaurnum í 401... eða nei.. hann var svo góður og sá aumur á aumingja litlu mér sem er alveg að verða fatalaus... og það er sko ekkert grín... hef ekkert gert hérna heima hjá mér lengi og þvílíka draslið í kringum eina manneskju... ég á bara ekki til orð...
Þvottavélin var að hringja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Þjóðarblómið!
Fólk
Útlandafólk
Landsbyggðarlúðar
- Emil Páll
- Arnar Frímanns.
- Rakel
- Hlynur frændi og tattoostofan
- Kropparnir
- Árni Árnason
- Linda Kristín
- Jelly Belly
- Þóra Kristín
- Bjarni
- Friðrik Jensen
-
Guðbjörg Þórunn
Fólk í Höfuðborginni
- Jón Ómar
- Þorgeir
- Stefán Bogi
- Davíð Örn
- Jón og Marisa
- Ólöf Inger
- Sólrún Ásta
- Heiðdís
-
Sigga
Sigga til hægri, Guðrún til vinstri - Guðrún Þóra
- Jóhanna Kristín
- Iðunn Ása
- María María
- Svava Ölversgella
- Þorkell Gunnar
- Hlín
- Sólveig
-
Tinna Rós
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar