22.6.2006 | 19:50
gleymd eða hvað?
Ég fékk akkúrat enga hjálp við að ákveða hvernig tölvu ég ætti að kaupa mér (spurning úr síðasta bloggi). Þannig að ég bið enn einu sinni um álit ykkar - hvernig tölvu ætti ég að kaupa? Þær sem ég er að skoða eru ibm-tölva annars vegar (veit samt ekki hvernig því fólk vill meina að ég hafi akkúrat ekkert að gera við einhverja fítusa sem einhverjar týpur eru með) og macbook hinsvegar. Þar sem ég er lúði þá er óskaplega erfitt fyrir mig að bera saman gæði tölvanna og hvor þeirra muni eldast betur. Ef þið teljið ykkur þurfa að sannfæra mig um ágæti annarra tegunda þá megið þið endilega reyna :)
Ég hef haft það ágætt í fríinu mínu - sef reyndar illa því ég gleymdi koddanum mínum heima hjá mér áður en ég kom til Keflavíkur og er alveg hrikalega aum í hálsinum. Ég nýtti sólina í gær og fór í heita pottinn hjá systur minni. Fékk reyndar ofsalega lítið val um það en það var allt í lagi. Fór með Benóný og svo kom Ásta þegar hún kom heim úr vinnunni. Fékk svo loksins mömmumat sem er bestur í heimi. Ég fór í eins árs ekkiafmæli í gær sem var alveg ágætt. Hef sem sagt ekki afrekað margt.. en til hvers eru frí? Einmitt til þess að jafna sig á litlum svefni og álaginu sem fylgir vinnunni. Fríið mitt er að styttast, ekki nema fjórir heilir dagar eftir.
Planið fyrir næstu daga er að reyna að sofa betur, versla smá á morgun ef ég nenni. Ég nennti því engan veginn í dag, en ég er orðin uppiskroppa með hrein föt hérna í Keflavík. Verð að kaupa ný :) Nei nei ég verð það ekkert en kannski samt :) Jóhanna var að bjóða í annað hvort stelpukvöld eða djamm annað kvöld. Var reyndar ekki búin að ákveða hversu lengi ég yrði hérna. Planið var að biðja bróður minn um að skutla mér á morgun eftir vinnuna hans en ég er að fara að láta laga eitt tattooið mitt hjá Hlyni frænda á laugardaginn þannig að ég fer ekki fyrr en eftir það. En kannski breytist það.. veit ekki neitt...
Eftir að ég fór í sumarbúðirnar hef ég komist að því að ekki einn einasti af vinum mínum hefur haft samband við mig að fyrra bragði. Þeir einu semhringja eða senda mér sms að fyrra bragði voru Gallup - þau eru hætt að hringja því ég bað um að vera tekin af lista - og pilluáminningin sem ég fæ á hverju kvöldi. Jú Dagný sendir mér stundum sms að fyrra bragði en annars er það upptalið. Gleymist maður svona rosalega eða skiptir maður það litlu máli að enginn tekur eftir því ef maður fer út á land í 10 vikur? Þetta er pæling...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
21.6.2006 | 11:58
Erfitt val og 1 árs prins
Guðsonur minn er eins árs í dag! Innilega til hamingju með litla prinsinn Ásta og Halli!! Til hamingju með daginn Benóný minn! Ég er einmitt að fara að fara til Keflavíkur til þeirra. Ásta er reyndar að vinna en Halli er heima með strákinn. Þarf líka að fara á spítalann heima. Ætla svo kannski að hitta Jóhönnu líka. Brjálað að gera í dag.
Nú vantar mig smá aðstoð. Mig langar svo í nýja tölvu, ég er alveg orðin veik en veit ekki hvernig tölvu ég á að fá mér. Þær sem koma helst til greina eru IBM (án þess að vita hvaða týpu) og Apple tölva.
Það er sko ekkert til í ísskápnum minum. Ég henti auðvitað öllu áður en ég fór sem gat myglað á tveimur vikum og þar af leiðandi er ekkert til hérna. Fattaði seint í gær að ég hafði ekkert borðað allan daginn nema tvö hrökkbrauð áður en ég fór frá Ölveri. Fann samt ekkert fyrir hungri.. ekki fyrr en núna bara en ég er á leið heim til mömmu og pabba sem eiga alveg örugglega mat þannig að það er allt í lagi. Og átti bara einn líter af kóki en það dugar mér ennþá :)
Jæja, ætla að fara að renna suðureftir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2006 | 17:46
Oh the pain
Öðrum flokki sumarsins lokið og ég er ótrúlega fegin. Ég hef aldrei upplifað flokk svona ótrúlega lengi að líða og ég vil tengja það við að flokkurinn var ótrúlega erfiður og krefjandi. Setningin hennar Sólveigar síðan í fyrra var mjög vel við hæfi í morgun: Komdu fljótt aftur - það er svo gaman að sjá þig fara! Það er ljótt að segja svona, þær voru alveg ágætar og oft á tíðum alveg yndislegar. Æ ég veit ekkert hverju ég er að reyna að koma frá mér. Inn á milli voru ótrúlega frábærar stelpur og hinar sem ekki voru eins frábærar voru í miklum minnihluta.
Við urðum rafmagnslausar um daginn. Ég var þá stödd í heita pottinum - það var svo kalt og leiðinlegt veður að ég ætlaði að forðast að frjosa til dauða með því að sitja yfir þeim á pallinum og ákvað að vera bara með þeim í pottinum. Skemmst frá því að segja að það komst eitt herbergi (tvær stelpur - hinar nenntu ekki) í pottinn áður en rafmagnið hvarf. Þar af leiðandi fór allur hiti af húsinu og allt heita vatnið líka. Ég sem ætlaði að forðast að frjósa úr kulda í fötum fraus úr kulda í bikiníi!! Var orðin helblá á vörunum og var svona fjóra daga að ná upp eðlilegum likamshita aftur!!
Eitthvað fleira sem hefur gerst síðan síðast? Ég var að reyna að deila þeim merkilegu upplýsingum (að mér finnst) með vini mínum áðan og honum fannst þær bara ekkert merkilegar en upplýsingarnar eru þær að ég smakkaði humar um helgina!! Ég er líka búin að vera ótrúlega dugleg að smakka allt sem fyrir mig er lagt. Ég veit ég hljóma eins og ég sé lítill krakki að smakka mat í fyrsta sinn en þið skiljið ekki hvernig það er að vera ég! Það er ótrúlega erfitt og maður nýtur ekki almennrar viðurkenningar í þjóðfélaginu - eða eitthvað :) En humarinn var ótrúlega góður! Hann hlaut náð fyrir augum mínum.
Ég er búin að vera ótrúlega góð í hausnum alveg síðan ég fór upp í Ölver. Hef tekið hjartalyfin mín samviskusamlega en er hætt á magatöflunum - í bili allavega. Ég hef verið slæm í bakinu að undanförnu og formaðurinn lofaði mér nuddi frá konunni hans - hún lærði nudd hérna í denn og það fékk ég á sunnudagskvöldið! Shit hvað það var hræðilega vont! Hún ráðlagði mér að fara til sjúkraþjálfara eða -nuddara því vöðvarnir væru bara í einhverju rugli. Og kvalirnar í höfðinu í gær eftir þetta. Shit!! Og alveg versti dagurinn til að fá mígreni - veisludagur með tilheyrandi ekkifríum og keyrslu. Svo fékk ég mígreni í dag líka en það var útaf því að ég klessti bílinn minn. Það var sko alls ekki gott og heldur ekkert skemmtilegt. En sá sársauki fór fljótt því ég upplifði annars konar sársauka í dag - ég fór nefnilega í vax á ansi hreint skemmtilegu svæði. Það var ógeðslega vont en ég lifði það af.
Þangað til næst!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.6.2006 | 12:16
*yet again*
Ég hef sem sagt ekkert að gera í lífinu annað en að hanga á Mótel Venus og blogga. Mér finnst rosalega gott að koma hingað, maturinn er góður - þótt ég sé nú ekki að borða núna því það er góður matur uppfrá á eftir - ég fæ að nota internetið og það eru allir voðalega viðkunnalegir. Verst að fólk er svo sjaldan á msn þegar ég kemst hingað. En það er allt í lagi. Svekkjandi fyrir ykkur að missa af mér.
Hafið þið einhvern tímann fengið þá tilfinningu að þið hafið eytt tímanum ykkar í eitthvað sem skiptir akkúrat engu máli og er bara alger tímaeyðsla og sóun? Mér finnst það óþægileg tilfinning, án þess að ég ætli að tjá mig eitthvað meira um það hér og ég geri það sennilegast aldrei. Enda skiptir þetta svo sem engu máli þannig lagað - tilfinningin er bara óþægileg. Er líka að reyna að hætta að hugsa svona mikið. Það kallar bara á vanlíðan og leiðindi. Ég verð bara að let go and let God og þá lagast allt.
Kemur gellan að reykja! Oj bara!! En ég þarf hvort eð er bráðum að fara. Vildi bara rétt láta vita af mér fyrst ég kom nú hingað
Var ég búin að segja ykkur að Benóný er byrjaður að labba á fullu? Hann er víst alveg út um allt núna. Hann verður eins árs á miðvikudaginn næsta... úff hvað tíminn líður hratt.
Jæja, farin í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2006 | 21:44
Framhjáhaldsstaðurinn
Ég er alveg að tapa heimsóknum með því að blogga svona sjaldan! Ég næ þessu bara upp aftur í haust En á meðan einhverjir kíkja á bloggið mitt er ég ánægð.
Um daginn setti ég inn í höfundaupplýsingar smá um mig en á eftir að betrumbæta það en nenni því ekki núna og hef ekki nennt því í mánuð eða eitthvað. En endilega lesið ef þið hafið áhuga.
Núna eru hjá okkur 44 börn sem taka ekkert smá á. Flokkurinn er að mínu mati frekar illa samsettur, mörg börn síðan í fyrra sem voru frekar erfið en dreifðust á nokkra flokka eru öll samankomin núna uppfrá. En hingað til hefur allt gengið vel og ég býst ekki við neinu öðru það sem eftir er vikunnar. 17. júní er á laugardaginn og þá verður gaman, það verður náttfatapartý eftir bænaherbergi í kvöld og ég er á næturvakt! Eins gott þær verði þreyttar. Þær fóru í fjallgöngu í dag þannig að þær geta ekki verið annað en þreyttar. En þetta er gefandi og gaman þótt maður þurfi að hafa aðeins fyrir börnunum Eftir 5 daga verð ég lent í höfuðborginni í kærkomnu fríi! Tvær vikur eru samt ekki langur tími.. skil ekki alveg af hverju ég hlakka svona til þess að komast í frí. En ég ætla bara að leika mér og chilla og hafa það gott.
Ég er að sprengja utan af mér fötin mín! Allavega þessar buxur sem ég er í... en þetta er nú elstu buxurnar sem ég á og þær eru mjög mikið notaðar. Saumarnir á innanverðum lærunum eru að gefa sig. Þyrfti kannski að fara að hreyfa mig eitthvað markvisst til að halda mér eins og ég er - en í fyrsta skipti á ævinni líður mér ógeðslega vel með hvernig ég lít út. Ég lít ekki lengur út eins og anorexíusjúklingur, ég er með brjóst, meira að segja bara mjög flott að mínu mati og er að venja mig á að vera alltaf bein í baki og rétta úr mér og vera tignarleg! Ég elska að sjá tignarlegar stelpur. Hún Hildur Björg mín er einmitt ein af þeim - hún er fyrrverandi ballerína og hún er svo ótrúlega tignarleg og mig langar að verða svoleiðis... þannig að ég er að vinna í því núna
Guðbjörg gleymdi 'Heitar lummur' geisladisknum sínum og ég er búin að kópera hann inn í tölvuna og á ipodinn minn og hef gjörsamlega nauðgað þessum lögum!! Ég veit ekkert skemmtilegra en að vaska upp og þrífa með Heitar lummur í eyrunum.
En ég þarf víst að fara að drífa mig uppeftir, kvöldvakan og kvöldkaffið er sennilega búið og ég gleymdi því sem ég ætlaði að gera hérna!! Oh shit!! Þarf að búa til ratleik og senda hann í tölvupósti svo ég fái hann á morgun... Kem örugglega ekkert aftur hingað á framhjáhaldsstaðinn Mótel Venus áður enég fer í frí en kem með blogg á þriðjudaginn bara næst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2006 | 14:16
1 down - 7 to go
Södd og sæl sit ég á Mótel Venus - en sígarettureykurinn skemmir það pínu! Hann veldur mér hausverk. Smá stund milli stríða - 21/23 stelpur fóru í morgun og von er á 46 stelpum á eftir! Fyrsta vikan var alveg hreint ótrúlega góð - þegar á heildina er litið. Ef maður fer með opnum huga inn í aðstæður sem maður ræður ekki við þá gengur miklu betur að taka vel á því sem upp kemur. Nenni ég að tala undir rós? Æ nei nei, skal bara segja ykkur hvað ég meina. Forstöðukonan sem var uppfrá í fyrsta flokki er ástæðan fyrir því að ég vinn ekki lengur í Hlíðinni og ég kveið því rosalega að hún kæmi uppeftir. Ég varð ofsalega sár út í hana eitt sinn er ég var að vinna með henni í Hlíðinni því ég fékk mígrenikast dauðans og varð rosalega veik en átti samt að gjöra svo vel að klára mína vinnu og mátti ekki leggja mig. Það er ekki eins og ég leggi mig við hvert tækifæri.. helst bara ef ég verð svona rosalega veik af höfuðverk. Eftir þetta hef ég fengið mígrenikast 3-4 sinnum í viku þegar ég er að vinna með henni og fannst hún brjóta á mér og hef ekkert líkað sérstaklega vel við hana eftir þetta. En ég ákvað að það þýddi ekkert að byrja sumarið á einhverjum leiðindum og lagði því fyrri tilfinningar til hliðar og tók á þessu með opnum huga. Skemmst er frá því að segja að hún er frábær forstöðukona og það var mjög gaman að vinna með henni. Ég varð ekkert veik og allt gekk vel. Í næsta flokki er jafnaldra mín forstöðukona og það er það sama sem gildir - hugsa jákvætt og taka því sem ber. Ég efast ekki um að hún standi sig vel en ég þarf bara að hafa open mind til að sjá það! Og það ætla ég að reyna eftir bestu getu.
Eftir viku kem ég heim í vikufrí. Mér finnst soldið erfitt að vera endalaust í fríi. Ég er kannski ekkert svo mikið í fríi þannig en tilfinningin er þannig því þetta er alltaf heil vika í einu sem ég er í fríi. Reyndar bara tvær svoleiðis en samt nógu mikið til að mér eigi eftir að leiðast. Mig langaði að fara austur til Frikka en sú eina sem ég þekki sem er í fríi kemst ekki þannig að það er dáið. En það er afmæli hjá Benóný þannig að ég hef nú alveg eitthvað að gera. Svo er líka útskriftarveisla hjá Sólveigu þá um helgina - brjálað prógramm...
Ég þarf nú eiginlega að fara að koma mér í kaupstaðinn ef ég ætla að vera komin uppeftir á undan krökkunum. Blogga aftur við tækifæri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.6.2006 | 15:35
Mótel Venus
Mótel Venus rúlar! Ég er í smá fríi frá Ölveri (í tvo og hálfan tíma sem eru næstum bráðum liðnir) og nýtti tímann í að fara að eins í Borgarnes og svo á Mótel Venus og nýta mér þráðlausa netið þeirra.
Sumarið byrjar mjög rólega. Í flokknum eru ekki nema 21 stelpa, 23 ef með eru taldar dætur forstöðukonunnar. Það er ótrúlega ljúft að byrja með svona fáar. Sumarið fer mjög vel af stað, frábært starfsfólk, þó ekki nema tvær okkar verði út sumarið - hinar verða allar fimm flokka eða færri, maturinn er mjög góður og umhverfið æðislegt. Veðrið gæti alveg verið betra en maður fær víst ekki allt. Stelpurnar eru hressar og njóta sín í botn.
Rosalega verður maður andlaus þegar maður hefur ekki skrifað lengi. Hausinn er fullur af hugmyndum en þær bara komast ekki rétt út.
Ég þoli ekki þegar mér er ekki sýnd sú virðing sem ég á skilið. Ég er ekkert endilega að halda því fram að það eigi eitthvað allir að bugta sig og beygja fyrir mér, en mér finnst að það eigi að koma fram við alla menn af kurteisi. Sérstaklega finnst mér að fólk sem er yngra en ég og þar af leiðandi með minni reynslu eigi að koma almennilega fram - ekki rífa kjaft endalaust og vera með leiðindi. Ég er ekkert endilega að tala um eitthvað ákveðið atriði en þetta liggur á mér núna.
Sem elsti foringinn á staðnum (og sá með mestu reynsluna) þá er ég forstöðukonuígildi ef forstöðukonan skyldi þurfa að bregða sér af bæ. Í þessum flokki er ég búin að vera forstöðukona í um 8 tíma sem dreifast á tvo daga - í gær og í fyrradag. Ég tók tvo símatíma og það gekk mjög vel og einnig stjórnaði ég tveimur matartímum starfsfólks og það gekk líka mjög vel. Ég fattaði það um daginn að ég er elsti foringinn sem vinnur hjá sumarbúðum KFUM og K sem er nánast allt sumarið!! Reyndar fer ég alveg í frí í tvær vikur en samkvæmt nýjum viðmiðum stjórnar Ölvers ætti fríið að vera 20 dagar - tveir dagar í hverri viku sinnum tíu vikur í staðinn fyrir einn dag fyrir hverja unna viku.
Ógeðslega finnst mér þetta léleg frammistaða eftir svona langt bloggleysi. Ég geri ráð fyrir því að koma aftur hingað á flokkaskiptunum á þriðjudaginn - eftir hádegi, ef ykkur langar til að hitta mig á msn eða lesa ruglið mitt. Ég slæ höndunum sko ekki á móti heimsóknum hingað uppeftir, en það þarf að láta vita af þeim með fyrirvara því það er ekkert gefið að maður sé í fríi á þessum stað Fæ nú alveg mín frí, en tímasetningin á þeim breytist bara dag frá degi. Annars kem ég nú heim eftir 10 daga í frí og þá kaupi ég nýja tölvu - eða vonandi. Námslánin eru komin og þá er ekkert sem stendur í vegi fyrir þeim innkaupum. Það er nú meira á dagskránni þegar ég kem í bæinn en hvað það er verður ekki gefið upp að svo stöddu.
Annars bið ég bara að heilsa ykkur og reyni að henda inn áhugaverðri færslu við tækifæri - eða á þriðjudaginn næsta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.6.2006 | 01:50
Gæsunin
Allt í plati!! ég er ekki farin upp í Ölver! Ástæðan fyrir því að ég laug blákalt að ykkur hérna á blogginu mínu er sú að við vorum nokkrar að gæsa Hlín vinkonu í dag og hana mátti sko ekki gruna neitt!! Hitti hana á msn í gær og sagði henni að ég væri á Mótel Venus að nýta mér þráðlaua netið þar. Hún keypti það alveg og varð mjög hissa þegar við sóttum hana í messuna í morgun. Við ruddumst reyndar ekkert inn.. við kunnum okkur alveg og berum virðingu fyrir Guðshúsi þótt það sé í sal í þjónustublokk eða eitthvað. Við hengdum hjartalaga blöðrur á bílinn hennar og földum okkur. Sáum svo þegar hún kom út úr húsinu og keyrðum upp að henni.. hún skellihló og fannst við æði Við fórum heim til foreldra hennar til að klæða hana í ógeðsleg föt og mála hana - ef ég kynni að setja myndir úr símanum mínum hingað inn þá myndi ég sýna ykkur hvað hún var asnaleg.
Við stoppuðum á Esso í Hafnarfirði og fengum okkur að borða áður en við fórum til Njarðvíkur í gokart. Það var voða gaman en ég er arfaslakur gokart ökumaður - var með lélegasta tímann af okkur öllum og ég náði einu sinni að snúast í hring og lenda næstum útaf og svo klessti ég einu sinni á líka... það var vont fyrir rifbeinin mín!
Eftir gokartið beið okkar nudd í Bláa Lóninu.. það var ágætt.. er reyndar með svo bólgna vöðva að þetta var eiginlega meira sárt heldur en notalegt... en ég hafði svo sem gott af því að láta losa aðeins um bólguna... nutum þess að liggja og spjalla og horfa á fólk ríða áður en við fórum i smá gufu og fórum svo inn og fengum geðveikt girnilegan ávaxtabakka og kampavín. Ég smakkaði meira að segja cantaloup-melónu og hún var ágæt... lagði ekki í að smakka meira á þessum bakka.
Eftir að við vorum búnar að taka okkur til og gera okkur sætar fórum við á Caruso að borða! Mmmmm hvað það var geðveikt gott. Þurftum reyndar að bíða mjög lengi en það var allt í lagi - maturinn var svo góður. Fórum svo heim til Heiðdísar í hvítvín, singstar og umræður um kynlíf... ógeðslega gaman
Svo er það bara Ölver á morgun og þaðan kem ég alkomin eftir 72 daga en í frí eftir 16 daga. Ef þið saknið mín rosalega er ég bara 45 mínútur í burtu og ávallt með símann í seilingarfjarlægð. Ekki það að ég lifi í þeirri blekkingu að ég haldi að þið deyjið ef þið hittið mig ekki í 10 vikur - veit alveg að þið lifið góðu lífi án mín Vona bara að ég sé ekki að fara þangað á röngum forsendum.. er soldið hrædd um það en ég veit alveg að ég sinni starfinu mínu mjög vel... alveg sama á hvaða forsendum ég fer. Er bara hrædd um að hugurinn (og hjartað) eigi eftir að vera annars staðar - og tíminn þar af leiðandi eftir að líða hægar en ella! En þetta verður bara að koma í ljós. Það lagast ekkert fyrr en ég tek á við það og til þess er leikurinn meðal annars gerður.
Hafið það gott.. ætla að reyna að blogga allavega einu sinni í viku... nema ég fái nettenginguna sem verið er að skoða, uppeftir til mín. Þá get ég lofað örari færslum. En njótið sumarsins og hafið það sem allra best!! Kem pottþétt með færslu fyrir helgi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.6.2006 | 19:57
megrun
Ég er í menningarsjokki!!! Eða kannski ekki menningarsjokki en einhvers konar sjokk er það!
Ég var í Zöru áðan - sem er ein uppáhaldsbúðin mín by the way - alltaf fullt af kúl gulum fötum þar - og var að skoða mig um rétt fyrir lokun. Fann endalaust af gulum fötum sem voru kannski ekki alveg minn stíll en engu að síður mjög flott enda er allt gult flott og ég fann geðveikan kjól, hvítan og gulan, ótrúlega sætan. Nema hvað að ég tek stærðina sem ég er vön að taka - small - en hann var of þröngur um magann svo ég skokka fram og sæki næstu stærð fyrir ofan - medium. Ég mátaði hann en hann var líka aðeins of þröngur yfir magann - að öðru leyti passaði hann fullkomlega og meira að segja yfir brjóstin, í engum brjóstahaldara!! Ég var á svo ótrúlega miklum bömmer yfir að passa ekki í medium að ég vildi ekki máta large - hef aldrei í lífinu þurft að nota föt í þeirri stærð!!! Og ef ég færi í large þyrfti ég sennilega brjóstastækkun - ekkert gífurlega en samt... Oh hvað ég er pirruð yfir þessu!! Núna er það bara megrun sem gildir!! Verst að ég er að fara í sumarbúðir þar sem maður étur endalaust mikið!!! Þá er bara málið að lifa á vatni það sem eftir er sumars... þá ætti maginn að deyja Drottni sínum!!!
Kjóllinn hefði verið svo tilvalinn í brúðkaup Þorgeirs og Hlínar *grát*
En ég keypti gular buxur í staðinn - ýkt flottar!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2.6.2006 | 13:30
dugnaður
Ég er orðin arfaslakur bloggari! En það er allt í lagi.. fáið ekkert svo margar færslur frá mér í sumar hvort sem er.
Ég sit hérna uppi í rúminu mínu og bíð eftir að þvottavélin klárist. Núna er ég að vinna í því að taka mig til fyrir Ölver og þrífa íbúðina mína svo ég komi ekki heim í skítugan skókassa eftir tvær vikur! Ég þarf líka að fara og kaupa fullt af dóti sem mig vantar - eða fullt - mig vantar kók og shampoo og hárnæringu. En kókið er nú svo sem alveg fullt. Tveggja vikna birgðir. Þarf líka að kaupa eina innflutningsgjöf sem ég gef svo í kvöld.
Ég fór til Keflavíkur í gær. Við Benóný fórum þrisvar sinnum út að labba. Ótrúlega dugleg. Ég fór til tannlæknisins míns og bæði hann og klíníkdaman hans fengu áfall yfir því að ég væri að koma fjórum mánuðum of snemma í árlegu skoðunina mína. Hann fann enga skemmd í tönninni minni eða neinni annarri tönn. Enda bjóst hann ekki við því - hef aldrei fengið skemmdir áður og ég á að halda því þannig.
Íbúðin þeirra Ástu og Halla er að verða ótrúlega flott. Þau eru alveg að verða búin að mála og stefna að því að byrja að flytja inn á morgun. Ég verð fjarri góðu gamni eins og í öllum flutningum fjölskyldunnnar - ég missti meira að segja af mínum eigin flutningnum í bæinn í fyrra. Var uppi í Ölveri þegar þau fluttu mig í bæinn. Ég tók engan þátt í því heldur þegar Fiffi flutti hingað inn - var að vinna og fékk áfall þegar ég kom heim. Og ég missti líka af því þegar hann flutti út en það var viljandi gert. Flúði til Keflavíkur á meðan það gekk yfir.
Þvottavélin er örugglega búin. Nú þarf að skipuleggja hvað mig vantar helst til að fara með uppeftir. Hvort er nauðsynlegra að eiga hreina boli eða hreinar nærbuxur og sokka? Eða sængurver? Þar sem ég á bara tvenn sængurver og þetta sem ég er með núna er alveg að verða skítugt.
Jæja farin...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Þjóðarblómið!
Fólk
Útlandafólk
Landsbyggðarlúðar
- Emil Páll
- Arnar Frímanns.
- Rakel
- Hlynur frændi og tattoostofan
- Kropparnir
- Árni Árnason
- Linda Kristín
- Jelly Belly
- Þóra Kristín
- Bjarni
- Friðrik Jensen
-
Guðbjörg Þórunn
Fólk í Höfuðborginni
- Jón Ómar
- Þorgeir
- Stefán Bogi
- Davíð Örn
- Jón og Marisa
- Ólöf Inger
- Sólrún Ásta
- Heiðdís
-
Sigga
Sigga til hægri, Guðrún til vinstri - Guðrún Þóra
- Jóhanna Kristín
- Iðunn Ása
- María María
- Svava Ölversgella
- Þorkell Gunnar
- Hlín
- Sólveig
-
Tinna Rós
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar