shortari

Ég fæ ekki eins langt frí og ég gerði ráð fyrir um helgina - það er eitthvað vesen hjá stelpunni sem á að leysa mig af og hún þarf víst að fara heim á laugardagskvöldinu. Þá er ekkert annað í stöðunni fyrir mig en að mæta hingað uppeftir um nóttina bara. Það samt eiginlega skemmir soldið plönin mín :-/ en það verður bara að hafa það - reyni að láta þetta hafa sem minnst áhrif ;) 

Af hverju getur fólk ekki bara spurð eða beðið um hlutina í stað þess að fara í kringum þá eins og köttur í kringum heitan graut? Ég þoli ekki þegar fólk vill eitthvað en getur ekki sagt það heldur ýjar að því þangað til maður gefst upp á vandræðaganginum og bíður þeim það sem þau eru að biðja um!!

Ég kveikti á tölvunni minni í morgun og kíkti á msn-ið og fannst frekar skrítið að sjá Jón Bjarna (vin hans Fiffa) á msn og hvað þá að hann væri merktur vinnunni því ég var svo viss um að það væri laugardagur í dag!! 

Ég er að hugsa um að leggja mig smástund.. ég er nefnilega á næturvakt í nótt og fæ ekki útsof í fyrramálið því það er skiptidagur. Þarf að vakna og þrífa eins og allir hinir kl. 8 í fyrramálið :-/ Annar veisludagurinn í röð sem ég er á næturvakt og annað útsofið mitt í röð sem fer fyrir lítið!!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Titlarnir hjá þér verða alltaf betri og betri. Maður býst við allt öðru en textinn er í raun um ;)

Bjarni (IP-tala skráð) 27.7.2006 kl. 21:01

2 Smámynd: Þjóðarblómið

Það er sko fríið mitt sem er shortari.. :) bara svona svo það sé á hreinu.. :)

Þjóðarblómið, 27.7.2006 kl. 21:42

3 identicon

seeya tommorrow

asta (IP-tala skráð) 27.7.2006 kl. 22:45

4 identicon

Bara að láta vita af mér. Kom og skoðaði síðuna þína eins og oft áður.

Emil Páll - blog.central.is/molar-epj (IP-tala skráð) 27.7.2006 kl. 23:17

5 Smámynd: Þjóðarblómið

Ásta: hlakka til :)

Emil: Takk fyrir það :)

Þjóðarblómið, 27.7.2006 kl. 23:22

6 Smámynd: Dagný Guðmundsdóttir

Pæling.....muntu eiga eitthvað frí þriðjudaginn 15 ágúst? Þar sem það er dagurinn sem ég hef gífurlega mikinn áhuga á að heimsækja þig! :D hehe

Dagný Guðmundsdóttir, 28.7.2006 kl. 05:10

7 identicon

Sælar, hvernig ertu að vinna um 6 leitið, minns er nefnilega að rúlla frahjá ölveri ;-)

Jóhanna M (IP-tala skráð) 28.7.2006 kl. 08:16

8 Smámynd: Þjóðarblómið

Dagný: 15. ágúst er veisludagur í unglingaflokknum, þannig að ég verð frekar upptekin :-/

Jóhanna: komdu bara! Voðalega er ég vinsæl í dag, tvær heimsóknir og allt að gerast :)

Þjóðarblómið, 28.7.2006 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 46425

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband