Færsluflokkur: Bækur

Skuggabörn

Vinnan mín er æðisleg! Nei, ég lýg því reyndar, vinnan er ekkert æðisleg en fólkið sem ég vinn með er æðislegt sem gerir það að verkum að það er yfirleitt mjög gaman í vinnunni minni. Mér líður allavega vel í vinnunni og finnst alltaf gaman að mæta þangað Brosandi Í kvöld er árshátíð Húsasmiðjunnar og ég fann mér deit - ef hann kemur úr sveitinni í tæka tíð. Annars er ég með tvo til vara, já eða þrjá Glottandi Það verður örugglega mjög gaman en vandamálið er að finna föt til að fara í. Ég tók myndir af tveimur kjólum sem koma til greina en myndavélin/tölvan er eitthvað klikk og vill ekki leyfa myndunum að fara inn í tölvuna, þannig að ég get ekki sýnt ykkur.

En þeir sem til þekkja: sko! Ég hef verið í báðum kjólunum á árshátíð KSS og KSF (og fyrir Andreu: líka á árshátíð Kennó (ég sem sagt veð ekkert í fötum eða peningum til að kaupa föt)). Annar er ljósblár, hnésíður og mjög flottur. Hinn er svartur með glimmer-rósum. Ef þessi hvorugur koma til greina á ég ljósblátt, hnésítt pils og örugglega hvítan bol með því og svo bleikt pils en ég á ekki straujárn, þannig að það eiginlega kemur ekki til greina, fyrir utan það að ég kann ekki að strauja það. Síðast þegar ég fór í það þurfti karlmaður að strauja það fyrir mig. What to do?? What to wear?

Æfingakennslan gengur vel, enn sem komið er. Við erum ekkert byrjaðar að kenna af viti, tókum einn stafsetningartíma í gær í sameiningu. Ég fór yfir textann áður, helstu reglur og svona og svo las Andrea hann upp - hún er með svo þægilega rödd að hlusta á. Annað er víst ekki hægt að segja um mig. Fékk að heyra það í fyrsta vettvangsnáminu að það væri ekki gott að hlusta á mig Óákveðinn og ég væri með óþægilega rödd. 

Ég fór á Bókamarkaðinn sem var í gamla World Class húsinu um daginn og keypti tvær barnabækur og eina bók fyrir mig. Bókin sem ég keypti handa mér heitir Skuggabörn og er eftir Reyni Traustason. Ég opnaði hana fyrir tveimur dögum og hef varla getað lagt hana frá mér. Hún er ótrúlega átakanleg og vel skrifuð. Þetta er stór heimur sem teygir anga sína út um allt. Ég þakka fyrir að hafa aldrei verið boðið nein fíkniefni, því hver veit þá hvar ég væri stödd í dag? 


Atómstöðin

1191.jpg

Loksins LOKSINS kláraði ég Atómstöðina!!! Lesturinn er búinn að taka mikið á en ekki tekur betra við því ég á enn eftir að lesa 79 af stöðinni og horfa á kvikmyndirnar sem gerðar voru eftir sögunum. Ritgerðarskil eru svo á þriðjudaginn!! Good Luck!!! 

Sagan er um Uglu sem kemur úr sveitum Norðurlands til höfuðborgarinnar. Hún er í vist hjá einum af ráðherrum borgarinnar, Búa Árland, konu hans og börnum. Hún kemur til borgarinnar til að læra á orgel og það gerir hún hjá Organistanum. Halldór blandar mörgum af helstu hitamálunum inn í söguna, eins og til dæmis Herstöðvarmálinu og flutningnum á beinum Jónasar Hallgrímssonar frá Kaupmannahöfn til Islands - þótt hann sé ekki kallaður Jónas í sögunni. Sagan er líka ástarsaga Búa og Uglu eftir að kona Búa fer vestur um haf en hún elur barn feimnu löggunnar sem verður þjófur. 

Sagan hefur verið talin sem framlag Halldórs Laxness til herstöðvarmálsins en hann var mikill andstæðingur herstöðvarinnar.

Sagan er ekki leiðinleg - ég veit ekki af hverju hefur tekið svona hrikalega langan tíma að fara í gegnum hana. Venjulega er ég mjög fljót með bækur en það er kannski af því að hingað til hefur verið svo langur tími í skil, en því miður er fresturinn alveg að verða búinn!! Þyrfti kannski að fara að drulla mér að halda áfram Óákveðinn

Annars fór ég og hitti Guðbjörgu mína í smástund í Smáralindinni áðan. Áður en ég gerði það keypti ég brauðrist (en ekki ristavél eins og ég segi víst en er vitlaust) og hraðsuðuketil - var komin með leið á að brenna mig á höndunum þegar ég hellti vatninu úr pottinum yfir í hitapokann minn! Gráta

Tölvan mín er farin að hegða sér mjög undarlega - hún er farin að drepa á sér bara þegar henni hentar! Eða kannski þegar hún hitnar rosalega mikið. Hún má samt eiginlega ekki bregðast mér núna! Ég ætla samt að slökkva á henni og leyfa greyinu að kæla sig niður svo ég geti notað hana í kvöld! 

Jæja, ætla að halda áfram að læra. 


Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband