13.1.2007 | 23:38
Í kjólinn fyrir... já... hmm!
Þá er megrunin hafin fyrir alvöru! Núna á ég allar græjur í þetta. Keypti gönguskó í vinnunni (tókst reyndar ekki áfallalaust) og skrefamæli líka í vinnunni og ætla að taka mig á. Ég skal taka það til baka, ég er ekki í megrun en átakið er hafið. Ég er sem sagt í átaki fyrir sumarið - ég er á leið í göngu í sumar með einu æskulýðsfélagi og þarf að koma mér í form fyrir það. Svo er ég víst að skipuleggja eina göngu fyrir ÆSKR en býst nú ekki við að hún verði eins löng og þessi sem kirkjan fer í. Eins og ég sagði, þá hófst átakið áðan með göngu heiman frá mér og upp á Háaleitisbraut á KSF fund og svo aftur til baka. Þetta voru um 2.4 km held ég - ef skrefamælirinn minn telur rétt. En það skal tekið fram að í bakaleiðinni stoppaði ég á American Style, gekk með hamborgarann minn heim og var að enda við að borða sveittan borgara og franskar.
Heilsuátakið mitt byrjar vel!!
Vinnan mín er líka í því að segja mér að ég þurfi að fara í megrun, byrja að hreyfa mig eða eitthvað. Við erum nefnilega núna með fullt af líkamsræktartækjum til sölu og þau rjúka út einsog heitar lummur... stivélar, hlaupabretti á 50 þúsund og önnur tegund á 100 þúsund, þrekhjól, spinninghjól, fjölþjálfamiðstöð eða eitthvað, róðravél, lóð, bekkpressubekkur og you name it bara... það er til. Sippubönd, ökklalóð, handlóð í ýmsum stærðum og gerðum.
Þetta er fyrri vinnuhelgin mín af tveimur og mikið hlakka ég til þess að næsta helgi verði búin. Það er svo lítið að gera í upplýsingunum eftir að kassinn var tekinn af okkur. Ég kláraði næstum heila barnabók í dag, ætla að klára hana fyrir svefninn bara og taka með mér aðra barnabók í vinnuna á morgun. Ég á nefnilega að lesa eins margar barnabækur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og ég kemst yfir fyrir fimmtudaginn, þá kemur höfundurinn í heimsókn í tíma til okkar og ræða við okkur.
Ótrúlega spennandi lesning ég veit... Á ekkert meira spennandi handa ykkur í kvöld, þannig að ég hugsa að ég láti þetta gott heita í bili og óska ykkur öllum góðrar helgar Ég er bara þreytt og ætla bráðum að fara að sofa, vinna á morgun og svona skemmtilegt.
Um bloggið
Þjóðarblómið!
Fólk
Útlandafólk
Landsbyggðarlúðar
- Emil Páll
- Arnar Frímanns.
- Rakel
- Hlynur frændi og tattoostofan
- Kropparnir
- Árni Árnason
- Linda Kristín
- Jelly Belly
- Þóra Kristín
- Bjarni
- Friðrik Jensen
-
Guðbjörg Þórunn
Fólk í Höfuðborginni
- Jón Ómar
- Þorgeir
- Stefán Bogi
- Davíð Örn
- Jón og Marisa
- Ólöf Inger
- Sólrún Ásta
- Heiðdís
-
Sigga
Sigga til hægri, Guðrún til vinstri - Guðrún Þóra
- Jóhanna Kristín
- Iðunn Ása
- María María
- Svava Ölversgella
- Þorkell Gunnar
- Hlín
- Sólveig
-
Tinna Rós
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég náði ekkert að kveðja þig almennilega í kvöld! Ekkert knús og ekki neitt...það gengur ekki! við þurfum þá bara að hittast á morgun eða mánudaginn og kveðjast almennilega!
Dagný Guðmundsdóttir, 14.1.2007 kl. 02:18
kvittó
Ólafur fannberg, 14.1.2007 kl. 10:19
Þetta er nú meiri vinnan sem þú ert í.
Annars væri ég til í bekkpressubekkinn og handlóðin, en hef ekkert pláss fyrir þetta...
Bjarni (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 20:53
híhíhí gangi þér vel með þetta heilsuátak :P megrun er eflaust óþarfi .. en það má alltaf leggja áheyrslu á bætta heilsu og líferni.
kveðja gummiö
season strákur
Guðmundur örn (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 22:14
er ekki frá því að það sé óvenjulangt síðan ég kommentaði.
ég er ekki búin að borða nammi í 16 daga og er ógó stolt af mér!
Guðbjörg Þórunn, 16.1.2007 kl. 08:29
Gummi: Gaman að sjá þig hér :)
Bjarni: ég er líka orðin veik fyrir þessu... en þú hefur séð stofuna/herbergið/eldhúsið mitt :) Ekkert pláss þar inni!!
Guðbjörg: Geðveikt dugleg!! Ég er ekki búin að drekka kók síðan í gær... en það breytist eftir augnablik :D
Þjóðarblómið, 16.1.2007 kl. 09:03
Það er nú gott að þú ert komin í mergun - þótt fyrr hefði verið!
Þráinn (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 21:53
Mér ferst ekki að tala um megrun og læt því duga að kvitta.
Emil Páll -blog.central.is/molar-epj (IP-tala skráð) 18.1.2007 kl. 21:42
Ojjjj megranir...........ojjj átök..............ojjj :s
Tinna Rós Steinsdóttir, 18.1.2007 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.