28.4.2006 | 11:15
Helgi dauðans
Ætla að sýna ykkur mynd af Superman!! Hann er alveg sætastur þetta barn.
Þessi helgi verður alger dauði! Það er brjálað að gera - bæði í vinnunni og social lífinu!! Ég skal segja ykkur hvernig þetta lítur allt saman út:
Í dag kl 16 er ég að fara að vinna í húsasmiðjunni til 19:30. Eftir það er ég að fara að vinna fyrir Ella í 10-11 til miðnættis eða rúmlega það. Já og það er aðalfundur 10-11 í kvöld með tilheyrandi djammi sem ég kemst ekki á af því að ég er að vinna fyrir Ella.
Í fyrramálið mæti ég í Húsasmiðjuna kl. 9:00 og verð til 19:30. Jóhanna vinkona er að halda upp á 25 ára afmælið sitt annað kvöld og já, finnst eiginlega að ég verði að mæta í það!
Á sunnudagsmorguninn er kirkja frá 10:15 til um 12. Síðasta fjölskyldumessan og síðasti sunnudagaskólinn á þessum vetri Get ekki beðið eftir að þessu ljúki. Kl. 13 er svo vinna í Húsasmiðjunni til 19:30 og djamm með þeim kl. 20 af því að ólíkt 10-11 þá lokar Húsasmiðjan á rauðum dögum!
Svo þarf ég að klára að lesa Atómstöðina og byrja á 79 af stöðinni eins og tími gefst til um þessa helgi! Það gengur ekki alveg eins vel að lesa og ég vildi... Atómstöðin er ekki sú skemmtilegasta sem ég veit um... því miður
Blogga kannski eitthvað skemmtilegra í dag ef ég nenni.
Um bloggið
Þjóðarblómið!
Fólk
Útlandafólk
Landsbyggðarlúðar
- Emil Páll
- Arnar Frímanns.
- Rakel
- Hlynur frændi og tattoostofan
- Kropparnir
- Árni Árnason
- Linda Kristín
- Jelly Belly
- Þóra Kristín
- Bjarni
- Friðrik Jensen
-
Guðbjörg Þórunn
Fólk í Höfuðborginni
- Jón Ómar
- Þorgeir
- Stefán Bogi
- Davíð Örn
- Jón og Marisa
- Ólöf Inger
- Sólrún Ásta
- Heiðdís
-
Sigga
Sigga til hægri, Guðrún til vinstri - Guðrún Þóra
- Jóhanna Kristín
- Iðunn Ása
- María María
- Svava Ölversgella
- Þorkell Gunnar
- Hlín
- Sólveig
-
Tinna Rós
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er djamm hjá Húsó á sunnudaginn í RVK?
Afhverju er aldrei þannig lagað hérna fyrir sunnan, ekki það að það skipti mig miklu máli lengur þar sem ég er að fara að hætta :P
Bjarni (IP-tala skráð) 28.4.2006 kl. 11:53
vá, busy helgi!! Þú ert allavega sloppin við allt sem að tengist flutningum hjá familíunni í Blikahólunum;) Óskaðu Bony M til hamingju með stórafmælið frá mér.
ásta (IP-tala skráð) 28.4.2006 kl. 15:00
Þú ert þjóðargersemi, litla Þjóðarblóm.
Ég verð að viðurkenna að ég er að detta inná þessa síðu þína í fyrsta sinn og ákvað að fletta aðeins í gömlum færslum hjá þér. Sé að þú ert á réttri hillu varðandi nám og ég er feginn fyrir þína hönd að þér gangi svona vel. Vonandi fæ ég (börnin mín) að njóta kennslu þinnar í framtíðinni (sem verður vonandi í Njarðvík)?
Good things come to those who wait sagði einhver. Ég held þú þurfir ekki að leita þér að hamingju, hún kemur og finnur þig.
Vonandi er þér sama að ég kvitti svona hér, og spyrji um leið í hvaða Húsó og 10-11 þú ert að vinna um helgar?
gamall vinur (IP-tala skráð) 28.4.2006 kl. 19:13
Síst af öllu hafði ég nú hugsað mér að vinna og búa í Njarðvík!!! En allt getur breyst...
Ég vinn í 10-11 á Barónsstíg og í Húsasmiðjunni í Grafarholtinu.
Það væri nú gaman að vita hver þú ert, sá sem segist vera gamall vinur minn...
En þannig er nú það :)
Þjóðarblómið, 28.4.2006 kl. 19:47
Vildi nú óska þess að ég hefði náð að vera betri vinur þinn en ég reyndist í raun og veru.
Veit nú ekki hvað ég á að gefa upp um mig svona á netinu, en vil ekki láta þig vera í vafa um hver ég er. Í mínum augum er Njarðvík ekki svo slæmur staður enda ég alinn upp þar. Er nokkrum árum eldri en þú og hef lengi verið hrifinn af þér þó ég hafi verið of duglegur að koma mér í aðstæður sem valda því að ég geti ekki stigið í vænginn við þig.
Ef þú ert ekki búin að átta þig ... getur þú ekki séð emailið hjá þeim óskráðu sem commenta hjá þér? Sendu mér tölvupóst og ég ljóstra upp þar.
gamall vinur (IP-tala skráð) 28.4.2006 kl. 20:50
jæja . . . landsbyggðarlúði segiru. þá ert þú nú bara einhver höfuðborgara plebbi :p hehe
það er einmitt líka mikið að gera hjá mér þessa dagana. kannski ekki svona mikið eins og hjá þér en samræmduprófin eru að byrja og verða dageftirdageftirdag.. svo það er nóg.
Guðbjörg Þórunn, 28.4.2006 kl. 23:00
Ég er búin að fatta hver þú ert :) Gaman að heyra frá þér, ég hef líka fylgst með þér í laumi, á síðunni þinni. Fann hana fyrir tilviljun líka :) Vona bara að þú hafir það gott í lífinu :)
Þjóðarblómið, 29.4.2006 kl. 00:34
já, ég fattaði það á skammstöfuninni í netfanginu þínu... þekki bara einn með þessa skammstöfun ;)
Þjóðarblómið, 29.4.2006 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.