Hafnargatan

Ég tók nokkrar myndir af garðinum heima og húsbílnum þeirra mömmu og pabba sem ég lofaði pabba að færu á netið. Ég er örugglega ein af þeim sem tek hvað minnst eftir umhverfinu í kringum mig því ég tók ekki eftir neinni breytingu í garðinum heima þegar pabbi var búinn að setja upp grind að pallinum. Ég tók heldur ekki eftir því þegar búið var að skipta um bílskúrshurð og klæða bílskúrinn að utan. Ég tók reyndar eftir því þegar hann byrjaði að helluleggja því ég hjálpaði til við að bera hellurnar inn í garð utan af götu. 

IMG_1430

Húsbíllinn þeirra sem áður gegndi hlutverki sjúkrabíls. Á síðustu vikum er hann búinn að fara með þeim hringinn í kringum landið. 

 

IMG_1432

 

 

 

 

Grindverkið og nýja blómabeðið. Mamma og pabbi eru búin að fara margar ferðir út í Hafnarfjarðarhraun og út á Reykjanes til að sækja grjót í beðið. Þarna má sjá afraskturinn og nokkur rósatré.

IMG_1433

 

Hérna sést aðeins betur hvernig þetta lítur út.

 

IMG_1437

 

Hérna er eitt af trjánum með blómstrandi rós.

 

 

IMG_1439

 

 

Horft út að götunni. Einu sinni voru þessir runnar bara litlar hríslur frá Alþýðubandalaginu. Held við höfum fengið þær gefins árið 1996 eða eitthvað.

 

IMG_1443

 

Að lokum er svo mynd af bílskúrnum sem pabbi klæddi og pallinum sem hann smíðaði fyrir tveimur eða þremur árum.

 

Annars átti ég alveg ofsalega góðan dag í dag. Ég hitti Jóhönnu og Egil Björgvin í mat í hádeginu og fór svo og fékk prinsinn minn lánaðan. Við eyddum heilum degi saman og skemmtum okkur kongunglega við að hoppa í pollum og róla og vega. Á meðan hann svaf nýtti ég tækifærið og heimsótti Jóhönnu og Egil Björgvin aðeins aftur og fékk að spjalla smá við prinsinn á meðan mamma hans var að taka sig til. Við Benóný fengum okkur svo að borða í bakaríinu, kíktum í búðarglugga og fórum á bókasafnið til að skoða bækur. Við heimsóttum auðvitað afa og ömmu og skemmtum okkur rosalega vel saman Smile Hann er algjört æði og farinn að spjalla alveg heilmikið þótt ég skilji ekki helminginn af því. En ég skil 'Tóta', 'amma', ava', 'áá' og 'gobbigobb' Smile

Ég nenni ekki meir í bili, lofaði pabba að ég setti þetta á netið. Ætla að fara að lesa 'Viltu vinna milljarð' Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þjóðarblómið!

Höfundur

Þjóðarblómið
Þjóðarblómið
Ég er 28 ára kennari í tilvistarkreppu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1443
  • IMG_1439
  • IMG_1437
  • IMG_1433

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband